What to recycle and in which bin?
Í sérstökum glugga á vef Sorpu er með auðveldum hætti hægt að slá inn algengustu úrgangstegundir og fá upplýsingar um hvernig á að flokka þær. Svör við ýmsum vangaveltum gætu komið á óvart og er að finna á vef Sorpu.
Leitargluggi fyrir úrgangstegundir á vef Sorpu
Í sérstökum glugga á vef Sorpu er með auðveldum hætti hægt að slá inn algengustu úrgangstegundir og fá upplýsingar um hvernig á að flokka þær. Fjöldi fólks veltir fyrir sér meðal annars flokkun á tannkremstúpunni, afskornum blómum, eggjaskurn, bökunarpappír, eyrnapinnum, bleyjum og ryksugupokum. Svörin við þessum vangaveltum gætu komið á óvart og er að finna á vef Sorpu
Fjórir úrgangsflokkar við heimili
Nýtt flokkunarkerfi á höfuðborgarsvæðinu öllu felur í sér að nú er fjórum úrgangsflokkum safnað við hvert heimili bæjarins lögum samkvæmt. Öðrum flokkum þarf að skila beint í viðeigandi gáma á Sorpu eða í grenndargáma. Til viðbótar við fjögurra flokka kerfi við heimili er unnið að fjölgun grenndargáma. Gleri, málmum, textíl og skilagjaldsskyldum umbúðum verður safnað á grenndarstöðvum sem verða staðsettar um 500 metra frá hverju heimili. Stærri grenndarstöðvar verða í um kílómetra fjarlægð frá hverju heimili og þar bætast við gámar fyrir pappír og pappa og plast.
Matarleifar – í tunnuna fer meðal annars:
- Eggshell
- Matarleifar með beini
- Coffee grounds
- Fiskiúrgangur
Plastumbúðir – í tunnuna fer meðal annars:
- Snack bags
- Plastfilma
- Plastic bags
- Shampoo bottles
Pappír og pappi – í tunnuna fer meðal annars:
- Newspapers
- Envelopes
- Pizza boxes
- Pappírsumbúðir
Blandaður úrgangur – í tunnuna fer meðal annars:
- Fancy tie
- Wet wipes
- Nappies
- Vacuum cleaner bags
Temjum okkur strax rétta flokkun – röng flokkun hindrar tæmingu
Samhliða dreifingu á nýjum sorpílátum í hverju hverfi er sorp losað, eldri ílát endurmerkt og aðlögunartími gefinn fram að næstu losun. Þar með er formleg innleiðing á flokkun hafin. Sérstök athygli er vakin á því að ef ekki er rétt flokkað í sorpílát í annarri losnun eftir að ný ílát og endurmerking hefur átt sér stað er sett tilkynning um að ekki hafi verið losað. Íbúar þurfa þá sjálfir að endurflokka og tunnan losuð í næstu losun. Íbúar eru hvattir til að hefja rétta flokkun um leið og ný ílát eru afhent.