Blómlegur Hafnarfjörður vekur athygli

News

Það fer vart fram hjá neinum sem á leið um Hafnarfjörð þessa dagana að bærinn stendur í miklum blóma. Litrík blómabeð, græn svæði og vel hirt umhverfi setja svip sinn á bæinn og hafa vakið verðskuldaða athygli. Á undanförnum vikum hafa fjölmargir íbúar og gestir haft samband við Hafnarfjarðarbæ til að lýsa ánægju sinni með ásýnd bæjarins og senda starfsfólki hrós fyrir fallegt og blómlegt umhverfi.

Markviss fegrun skilar árangri

Það fer vart fram hjá neinum sem á leið um Hafnarfjörð þessa dagana að bærinn stendur í miklum blóma. Litrík blómabeð, græn svæði og vel hirt umhverfi setja svip sinn á bæinn og hafa vakið verðskuldaða athygli. Á undanförnum vikum hafa fjölmargir íbúar og gestir haft samband við Hafnarfjarðarbæ til að lýsa ánægju sinni með ásýnd bæjarins og senda starfsfólki hrós fyrir fallegt og blómlegt umhverfi.

Á bak við þessa fallegu ásýnd liggur markviss vinna starfsfólks Hafnarfjarðarbæjar í samstarfi við verktaka. Garðyrkjudeild bæjarins sinnir allt árið fjölbreyttum verkefnum við umhirðu opinna svæða, garða og gróðurs um allan bæ. Samhliða þeirri reglubundnu umhirðu eru nú í gangi þrjú metnaðarfull verkefni sem eiga það sameiginlegt að gera Hafnarfjörð enn grænni, fallegri og notalegri fyrir íbúa og gesti.

Andlitslyfting miðbæjarins

Ráðist hefur verið í markvissa endurnýjun á ásýnd umhverfis í hjarta Hafnarfjarðar. Sérstök áhersla hefur verið lögð á að fegra helstu aðkomuleiðir að miðbænum, meðal annars meðfram Reykjavíkurvegi og Fjarðargötu auk hringtorga á svæðinu. Jafnframt hefur verið unnið að endurbótum á Strandgötu, Thorsplani og svæðinu í kringum Fjörð þar sem litskrúðug sumarblóm og endurnýjuð götutré skapa hlýlegra og fallegra bæjarumhverfi. Þar hafa ný tré tekið við af eldri trjám og þannig hefur græn ásýnd miðbæjarins til framtíðar verið styrkt.

Unnið hefur verið heildstætt skipulag fyrir þróun miðbæjarins sem felur í sér fjölbreyttar hugmyndir um áframhaldandi uppbyggingu. Verkefnunum verður forgangsraðað og þeim hrint í framkvæmd í áföngum eftir því sem fjárhagsrammi leyfir.

Grænni Vellir

Á Völlunum hefur gróður lengi átt undir högg að sækja vegna krefjandi veðurskilyrða og rýrs jarðvegs. Til að snúa þeirri þróun við var unnin markviss áætlun um hvernig mætti bæta vaxtarskilyrði og efla gróður á svæðinu. Frá því í vor hefur garðyrkjudeild bæjarins unnið samkvæmt þeirri áætlun og þegar eru farin að sjást jákvæð merki um árangur. Með áframhaldandi uppbyggingu er stefnt að því að skapa grænna og blómlegra hverfi sem mun dafna enn betur á komandi árum.

Meiri gróður í Áslandi

Síðar í sumar og fram á haust verður ráðist í umfangsmikla gróðursetningu í Áslandi I, II og III. Þar verða gróðursettar hundruð plantna sem munu styrkja græna ásýnd hverfanna og gera útivistarsvæði enn aðlaðandi fyrir íbúa á öllum aldri. Markmiðið er að byggja upp fjölbreytt, fallegt og sjálfbært gróðurumhverfi sem nýtist bæjarbúum um ókomin ár og stuðlar að auknum lífsgæðum.

 

Sameiginlegt stolt

Fallegt bæjarumhverfi verður ekki til af sjálfu sér. Það er afrakstur fagmennsku, skipulagðrar vinnu og metnaðar starfsfólks Hafnarfjarðarbæjar sem vinnur daglega að því, í samstarfi við verktaka, að hlúa að grænum svæðum bæjarins. Þetta er líka afrakstur íbúa og fyrirtækja í bænum sem ganga vel og fallega um bæinn sinn og leggja sitt af mörkum með því að hugsa vel um sinn gróður og sínar lóðir. Það gleður sérstaklega þegar íbúar og gestir taka eftir breytingunum og senda inn hrós og ábendingar um hversu blómlegur og fallegur Hafnarfjörður er orðinn. Slík viðbrögð eru besta staðfestingin á því að markviss uppbygging skilar árangri.

Hafnarfjörður er sannarlega í blóma – og það er aðeins upphafið.

Suggestion portal