Category: News

Response to and after an earthquake – in light of the circumstances

Talsvert hefur verið um skjálftavirkni eins og bæjarbúar hafa eflaust tekið eftir. Svokallaðir gikkskjálftar staðsettir rétt vestan við Kleifarvatn hafa gert vart við sig nú. Kvikuinnskotið við Fagradalsfjall veldur spennubreytingum bæði vestan við Kleifarvatn og í grennd við Grindavík sem leysir úr læðingi skjálftana. Það er því sennilega ekki kvika á ferðinni við Kleifarvatn eða […]

Skapandi sumarstörf – GÚA

Gúa Margrét Bjarnadóttir eða “Gúa” er lagahöfundur, píanóleikari og söngkona. Verkefnið hennar í sumar er að leggja lokahönd á stuttskífu eða svo kallaða “EP” plötu. Hún vinnur að tónlistinni, semur lögin og tekur upp og vinnu ásamt því grafískt myndverk sem hreyfist í takt við hvert lag fyrir sig, er hannað algjörlega fyrir hvert lag […]

Endurnýjun á leikvöllum bæjarins

Í sumar hefur margt verið um að vera í endurnýjun á opnum leikvöllum sem og sparkvöllum hér í bænum, til að koma þeim í sitt besta stand. Meðal þeirra má nefna leik- og sparkvellina við Drekavelli, Túnhvamm og Lyngbarð eins og sjá má á myndunum hér með fréttinni.  Við hvetjum einnig íbúa til að kynna […]

Skapandi sumarstörf – Hremma

Hrafnhildur Emma Björnsdóttir, “HREMMA”, er Hafnfirsk listakona og rithöfundur. Hremma vinnur að því í sumar að skrifa og myndskreyta jóladagatalið Katla og Leó bjarga jólunum og setja það yfir á bókaform. Hugmyndin hefur þróast mikið frá fæðingu, það sem fyrst var ætlað sem sjónvarpsefni varð að bók, síðan að teiknimyndasögu og nú aftur að bók. […]

Nóg um að snúast hjá Verkhernum

Verkherinn er atvinnuúrræði fyrir ungmenni með fatlanir á aldrinum 16- 20 ára og er staðsettur í Húsinu, Suðurgötu 14. Eitt af fjölmörgum verkefnum Verkhersins í sumar er að kynna heilsubæinn Hafnarfjörð og sýna hann frá sjónarhorni ungmenna í Hafnarfirði. Sérstakur fjölmiðlahópur innan Verkhersins sér um þessa kynningu og hefur sérstakur aðgangur verið opnaður á Instagram […]

Skapandi sumarstörf 2022

Sumarið 2021 ákvað Hafnarfjarðarbær í samstarfi við Ungmennahús bæjarins, Hamarinn, að endurvekja verkefnið “Skapandi sumarstörf” sem hafði verið starfrækt sumarið 2017. Þá bauðst einstaklingum og hópum á aldrinum 18-20 ára að koma með hugmyndir að skapandi verkefnum í Hafnarfirði. Valdir hópar fengu tækifæri til að starfa við ýmis skapandi verkefni á ýmsum sviðum lista sem […]

Hlutverk og margþættur tilgangur vinnuskólans

Snýst ekki bara um verkefnin heldur líka samveru og félagsleg tengsl. Vinnuskóli Hafnarfjarðar býður ungmennum í Hafnarfirði á aldrinum 14-17 ára upp á skemmtilega og fræðandi sumarvinnu. Vinnuskólinn er hugsaður sem fyrsti vinnustaður ungmenna þar sem þau læra hvernig það er að vera hluti af vinnumarkaðnum í öruggu starfsumhverfi. Vinnuskólinn snýst ekki einungis um verkefnin […]

Gæsluvellir á Hlíðarbergi og Hamravöllum opnir frá 18. júlí – 29. júlí

Í sumar eru starfræktir gæsluvellir/róló við leikskólann Hlíðarberg að Hlíðarbergi 1 og leikskólann Hamravellir að Hamravöllum 1. Gæsluvellirnir verða opnir frá kl. 9–12 og 13–16 alla virka daga (lokað í hádeginu) frá 18. júlí – 29. júlí. Gæsluvellirnir eru fyrir börn á aldrinum 2–6 ára (fædd 2020-2016). Í boði eru tvennskonar kort: 5 skipta kort […]

Leið 1 ekur að Skarðshlíðarhverfi

Frá og með 14. ágúst mun leið 1 aka að Skarðshlíðarhverfi í Hafnarfirði.  Í stað þess að aka inn Klukkuvelli þá ekur leið 1 um Hnappavelli og Ásvallabraut. Tvær nýjar biðstöðvar, Hamranes og Skarðshlíð opnast á Ásvallabraut.  Nánari upplýsingar á: Strætó (straeto.is)

New projects that empower young people in vulnerable situations

Fjárframlag til að efla virkni, vellíðan og félagsfærni barna í viðkvæmri stöðu í sumar Mennta- og barnamálaráðherra ákvað í vor að styðja fjárhagslega við þau sveitarfélög sem hyggjast auka við frístundarstarf fyrir börn og unglinga í viðkvæmri stöðu í sumar vegna áhrifa heimsfaraldurs.  Hafnarfjarðarbær fékk úthlutað sem nemur 11,7 milljónum króna og verður upphæðinni varið […]