Hafnarborg telur niður dagana fram að jólum með því að sýna jóladagatalið Hvar er Völundur? milli kl. 16 og 17 alla opnunardaga safnsins í desember fram að jólum. Hvar er Völundur? er jóladagatal sem framleitt var af RÚV árið 1996 og er löngu orðið klassískt. Höfundur þess er Þorvaldur Þorsteinsson listamaður en yfirlitssýning á verkum […]
Category: News
Alþjóðlegt 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi
Fimmtudaginn 25. nóvember var alþjóðlegur baráttudagur Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi. Af því tilefni var hús Hafrannsóknarstofnunar í Hafnarfirði, Harpa, Stjórnarráð Íslands, Gróttuviti auk fleiri bygginga lýstar upp í appelsínugulum lit, sem er táknrænn fyrir von og bjarta framtíð kvenna og stúlkna án ofbeldis. Átakið, sem lýkur 10. desember á alþjóðadegi mannréttinda, er drifið áfram […]
Fræðslusjóður í Flensborg – opið fyrir umsóknir
Opið er fyrir umsóknir um styrk úr Fræðslusjóði Jóns Þórarinssonar. Allir þeir sem lokið hafa fullnaðarprófi frá Flensborgarskólanum og eru í framhaldsnámi geta sótt um styrk. Umsóknir verða að berast rafrænt á netfangið erla@flensborg.is, eigi síðar en á miðnætti föstudaginn 3. desember 2021. Umsóknin skal merkt Fræðslusjóður Jóns Þórarinssonar. Umsókn þarf að fylgja staðfest gögn […]
Jólaþorpið í Hafnarfirði opnar um helgina
Litlu jólahúsin á Thorsplani fyllast af lífi, vörum og varningi strax á morgun Jólaþorpið í Hafnarfirði verður opnað á morgun kl. 17, fyrsta föstudag í aðventu, og verður opið alla laugardaga og sunnudaga á aðventunni auk opnunar á Þorláksmessukvöld. Ljósin verða tendruð á jólatrénu á miðju Thorsplani fyrr um daginn í fámenni og er jólatréð […]
You'll find the Christmas spirit in the Christmas town of Hafnarfjörður!
Komdu og njóttu aðventunnar í jólabænum! Jólablað Hafnarfjarðar er þessa dagana að detta inn um lúgur Hafnfirðinga og vina Hafnarfjarðar í Reykjavík, Garðabæ og Kópavogi. Jólablaðið hefur þann eina og sanna tilgang að kynna jólabæinn Hafnarfjörð fyrir öllum áhugasömum, fyrir gestum og gangandi og varpa ljósi á þann hlýleika og fjölbreytileika sem býr með fólkinu […]
Njótum aðventunnar í hlýlega og heillandi jólabænum
Aðventukveðja frá bæjarstjóra Hafnarfjarðar birðist í jólablaði Hafnarfjarðar 2021 sem gefið er út þriðja árið í röð og dreift í hús í Hafnarfirði, Garðabæ, Kópavogi og hluta Reykjavíkur. Aðventukveðja frá bæjarstjóra Hafnarfjarðar —————— Njótum aðventunnar í Hafnarfirði – í hlýlega og heillandi jólabænum Jólaljósin mild og fögur eru farin að lýsa upp tilveruna í Hafnarfirði […]
Vilt þú verða hluti af samfélaginu á St. Jó?
Lífsgæðasetur St. Jó hýsir fjölbreytta og lifandi starfsemi á sviði heilsu og sköpunar Lífsgæðasetrið er samfélag einstaklinga og fyrirtækja sem eiga það sameiginlegt að auka lífsgæði fólks með forvörnum, heilsurækt, ráðgjöf, fræðslu og sköpun. Lífsgæðasetur St. Jó hýsir í dag fjölbreytta og lifandi starfsemi 17 aðila á sviði heilsu og sköpunar og í byrjun árs […]
Improvements to open playgrounds
Í Hafnarfirði eru fjölmargir og fjölbreyttir leik- og sparkvellir og á hverju ári er unnið að viðhaldi og endurnýjun þeirra út frá ákveðinni forgangsröðun. Síðastliðnar vikur hefur m.a. verið unnið að endurbótum á leikvelli milli Álfholts og Eyrarholts og á Akurvöllum. Á leikvelli á Akurvöllum var kofa og öðrum leiktækjum skipt út fyrir ný leiktæki, […]
Töfrar félagsmiðstöðva og ungmennahúsa
Vissir þú að í Hafnarfirði eru starfræktar 9 félagsmiðstöðvar og 2 ungmennahús? Félagsmiðstöðva- og ungmennahúsavikan er haldin hátíðleg dagana 15.-19. nóvember. Vikan hefur það að markmiði að varpa ljósi á mikilvægi og virði þessa vettvangs fyrir börn og ungmenni með hvatningu um að sem flestir (foreldrar, forráðamenn, systkini, vinir og aðrir aðstandendur) kynni sér starfsemi […]
Fjöldatakmarkanir og átak í örvunarbólusetningum
COVID-19: Hertar aðgerðir, 50 manna fjöldatakmarkanir – stórátak í örvunarbólusetningum Heilbrigðisráðherra hefur í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis ákveðið að herða til muna sóttvarnaaðgerðir til að sporna við hraðri útbreiðslu Covid-19. Aðgerðirnar taka gildi á miðnætti. Almennar fjöldatakmarkanir verða 50 manns en með notkun hraðprófa verður heimilt að efna til viðburða með að hámarki 500 manns […]