Do you want to become part of the community at St. Jó?
Lífsgæðasetrið er samfélag einstaklinga og fyrirtækja sem eiga það sameiginlegt að auka lífsgæði fólks með forvörnum, heilsurækt, ráðgjöf, fræðslu og sköpun.
Lífsgæðasetur St. Jó hýsir fjölbreytta og lifandi starfsemi á sviði heilsu og sköpunar
Lífsgæðasetrið er samfélag einstaklinga og fyrirtækja sem eiga það sameiginlegt að auka lífsgæði fólks með forvörnum, heilsurækt, ráðgjöf, fræðslu og sköpun. Lífsgæðasetur St. Jó hýsir í dag fjölbreytta og lifandi starfsemi 17 aðila á sviði heilsu og sköpunar og í byrjun árs 2022 mun leigurýmum fjölga um 16. Rýmin eru á bilinu 7 – 25 fm. og eru staðsett á 1., 2. og 4. hæð hússins. Um áramót munu bæði Alzheimer- og Parkinsonsamtökin opna nýjar þjónustumiðstöðvar á 3. hæð Lífsgæðasetursins.
Auglýst er eftir aðilum sem hafa áhuga á að bætast í góðan hóp sem saman myndar öflugt samfélag.
Í umsókn skal gera grein fyrir eftirfarandi:
- Kynning á umsækjanda/umsækjendum
- Afrit af skírteinum og/eða starfsleyfi, eftir því sem við á
- Greinargóð lýsing á hugmynd/starfsemi
- Hvernig fellur hugmyndin að markmiðum Lífsgæðaseturs?
- Hvaða þarfir eru varðandi húsnæði (stærð, staðsetning, aðstaða, umfang starfsemi)
- Rekstraráætlun
Fyrirtækin hafa komið sér huggulega fyrir í sínu rými í setrinu eins og sjá má
Hjartað er sameiginleg kaffistofa allra þeirra sem starfa í húsinu.
Umsóknir og umsóknarform
Umsóknarform má nálgast á vef Lífsgæðasetursins. Umsóknir skal senda á stjo@stjo.is. Nánari upplýsingar veitir Ragnheiður Agnarsdóttir verkefnisstjóri St. Jó í gegnum netfangið: ragnheidur@stjo.is