Sópun á götum, stéttum og göngustígum í Hafnarfirði er hafin. Fyrir páska var byrjað á sópun á aðalleiðum og mun þeirri framkvæmd ljúka í vikunni. Stígahreinsun er hafin og verða aðalstígar hreinsaðir fyrst og síðan almennir stígar. Bænum er skipt upp í 14 hverfi og eru hverfin skiltuð upp degi fyrir sópun með tilkynningu um […]
Category: News
Tímabundin lokun rampa sunnan við Strandgötubrú
Þriðjudaginn 14. apríl mun verktaki loka aðrein að Reykjanesbraut frá Strandgötu, suðvestan Strandgötubrúar, vegna vegaframkvæmda. Þá verða báðir ramparnir sunnan við Strandgötubrú lokaðir. Hjáleiðir eru um Krýsuvíkurveg, Ásbraut og Kaldárselsveg.Þessi lokun mun standa yfir fram yfir mánaðarmót. Upplýsingasíða um tvöföldun Reykjanesbrautar Nú hyllir undir að lokið verði við tvöföldun Reykjanesbrautar í gegnum Hafnarfjörð. Framkvæmdir eru […]
Jarðskjálfti á Reykjanesi. Earthquake in the Reykjanes peninsula
Í ljósi jarðskjálftahrinu á Reykjanesskaga og að Veðurstofa Íslands segir að líkur á skjálfta um eða yfir 6 á stærð á Reykjanesi sem mun hafa áhrif á höfuðborgarsvæðinu hvetjum við íbúa til þess að nýta tímann heima til þess að huga að innanstokksmunum og huga að því hvernig gengið er frá innanhúss. Mikilvægt er að […]
Heilt stafróf af hugmyndum
Á tímum samkomubanns og sóttkvíar er mikilvægt að hlúa vel að sjálfum sér og öðrum. Hér er samankomið heilt stafróf af hugmyndum, fjölmargt spennandi og skemmtilegt sem fólk getur tekið sér fyrir hendur næstu vikurnar. Hugmyndirnar eru hugsaðir sem vegvísir að fjölbreyttum verkefnum en aðalmálið er að finna eitthvað nýtt og öðruvísi að gera, einn […]
Brandaraganga í boði í brandarabænum
Opnuð hefur verið hressandi gönguleið, brandaraganga, um skemmtilegar slóðir í Suðurbæ Hafnarfjarðar í smáforritinu Wapp – Walking App. Á leiðinni eru 27 áningarstaðir með bröndurum og alls eru brandararnir 37 talsins. Brandaragangan er í boði Heilsubæjarins Hafnarfjarðar líkt og fleiri göngur í smáforritinu m.a. núvitundarganga við Hvaleyrarvatn. Gangan er við allra hæfi og brandararnir sem […]
Litli Ratleikur – páskagjöf til íbúa og vina Hafnarfjarðar
Heilsubærinn Hafnarfjörður og Hönnunarhúsið ehf. hafa tekið höndum saman í samkomubanninu og gefið út Litla ratleik í fyrsta sinn. Litli Ratleikur Hafnarfjarðar er ætlaður sem hvatning til útiveru í og við byggðina í Hafnarfirði. Hann er frábrugðinn stóra Ratleik Hafnarfjarðar að engin ratleiksmerki eru á staðnum eða ratleikskort en hægt er að stunda hann hvenær […]
Nýr skólastjóri Engidalsskóla hefur verið ráðinn
Margrét Halldórsdóttir hefur verið ráðin í stöðu skólastjóra við Engidalsskóla í Hafnarfirði. Hún tekur við stjórnun skólans frá og með 1. ágúst næstkomandi en mun í vor koma að skipulagi skólastarfsins fyrir næsta skólaár. Margrét hefur meistaragráðu í forystu og stjórnun frá Háskólanum á Bifröst, Diplóma í opinberri stjórnsýslu og B.Ed próf frá KHÍ. Í […]
A quick chat with senior citizens
Þjónusta við eldri borgara í Hafnarfirði er allajafna fjölbreytt, bæði inn á heimilum og utan þeirra. Eftir að samkomubann var fyrst sett á í byrjun mars var ákvörðun tekin um að fella tímabundið niður félagsstarf eldri borgara og loka sameiginlegum mötuneytum til að gæta fyllstu varúðar og öryggis. Heimaþjónusta; heimilisþrif, félagslegur stuðningur og aðstoð við […]
Spjaldtölvur að láni fyrir skjáinnlit á tímum Covid19
„Það eru ekki allir í þeirri stöðu að hafa stóra fjölskyldu í kringum sig sem sér til þess að félagslegri þörf og þörf fyrir samskipti og það að „hitta“ einhvern sé uppfyllt“ segir Sjöfn Guðmundsdóttir deildarstjóri stuðnings- og stoðþjónustu á fjölskyldu- og barnamálasviði Hafnarfjarðarbæjar. Hafnarfjarðarbær tók þá ákvörðun að afhenda hópi eldri borgara spjaldtölvur til […]
Hefur starfað með 12 bæjarstjórum
Eygló Hauksdóttir hefur starfað hjá Hafnarfjarðarbæ frá árinu 1977, í tíð 12 bæjarstjóra. Hún verður sjötug í apríl og viðurkennir að þykja einkennileg tilhugsun að hætta á tímum samkomubanns en lítur afar þakklát yfir farinn veg og hefur engar áhyggjur af eirðarleysi þegar hún lýkur störfum í þessum mánuði. Bæjarblaðið Hafnfirðingur hitti Eygló á dögunum. […]