Fræðslusvið Reykjanesbæjar, fræðslu- og frístundaþjónusta Hafnarfjarðar og skólaþjónusta Árborgar hafa átt í samstarfi um þróunarverkefni sem gengur meðal annars út á það að styrkja nám, líðan og félagslega stöðu nemenda af erlendum uppruna í skólum. Markmið þess er að styðja skólana í að staðsetja nemendur af erlendum uppruna hvað varðar fyrri þekkingu og reynslu. Niðurstöður […]
Category: News
Bæjarstjórnarfundur 15. ágúst
Boðað hefur verið til bæjarstjórnarfundar miðvikudaginn 15.ágúst. Fundurinn hefst kl. 8:30 í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg, Strandgötu 34. Hér er hægt að sjá dagskrá fundar. Hér er hægt að horfa á fundinn í beinni útsendingu
Persónuverndarfulltrúi ráðinn
Hafnarfjarðarbær hefur ráðið persónuverndarfulltrúa í fullt starf en staðan var auglýst í byrjun sumars. Í starfið var ráðinn Jón Ingi Þorvaldsson og var hann valinn úr hópi 24 umsækjenda að loknu ítarlegu valferli. Jón Ingi lauk B.A. og M.A. gráðu í lögfræði árið 2011 frá HÍ. Í námi voru álitaefni og reglur um persónuvernd sérstakt […]
Snyrtileikinn 2018 – tilnefningar
Hafnarfjarðarbær leitar til íbúa og annarra áhugasamra eftir tilnefningum til viðurkenninga fyrir snyrtileika og fegurð eigna, garða og gatna í Hafnarfirði. Veittar verða viðurkenningar fyrir snyrtilegustu eignina, fallegasta garðinn, fallegustu götuna og snyrtilegasta fyrirtækið. Val til viðurkenninga byggir eingöngu á innsendum tillögum og því eru íbúar, starfsmenn og aðrir áhugasamir hvattir til virkrar þátttöku. Fegrunarnefnd […]
Tónlistarskóli Hafnarfjarðar óskar eftir að ráða skólastjóra til starfa.
Skólinn var stofnaður 1950 og starfar nú á tveimur stöðum í Hafnarfirði. Í glæsilegum skóla að Strandgötu 51, sem vígður var 1997 og í Tónkvísl við „Gamla Lækjarskóla“ þar sem rytmiska deildin er til húsa. Starfið felur í sér að stýra skólanum þar sem um 600 nemendur stunda nám og 50 kennarar starfa við skólann […]
Dvergsreitur í uppbyggingu
Í gær undirrituðu Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri og Helgi Gunnarsson fyrir hönd GG verk samning um uppbyggingu á Dvergsreitnum samkvæmt niðurstöðum útboðs. Deiliskipulagið er á lokastigum og framkvæmdir hefjast væntanlega snemma í haust.
Framkvæmdir við Reykjanesbraut
Laugardag 14. júlí frá kl 07:30-15:30 er stefnt að því að þökuleggja mön á 200m kafla á Reykjanesbraut í Hafnarfirði. Svæðið sem um ræðir er á kaflanum þar sem ekið er undir Áslandinu og þarna er ein akrein í hvora átt og umferð sett á hjáleið um Ásabraut, óhindruð umferð er til suðurs í átt […]
Róló á leikskólanum Hlíðarbergi
Í sumar verður starfræktur gæsluvöllurinn Róló á leikskólanum Hlíðarbergi, Hlíðarbergi 3, í sumarfríi leikskólanna frá 11. júlí til og með 3. ágúst. Opnunartími er frá kl. 9.00-12.00 og 13.00-16.00 (lokað í hádeginu). Róló er ætlaður börnum á aldrinum 2-6 ára. Börnin verða að vera klædd eftir veðri og með aukaföt. Athugið að lítil aðstaða til […]
Framkvæmdir við Kaldárselsveg
Framkvæmdir eru hafnar við endurnýjun Kaldárselsvegar, ásamt gerð göngu- og hjólastíga og landmótun á nærliggjandi svæði. Verkið felur í sér endurgerð vegarins frá Reykjanesbraut að Elliðavatnsvegi, gerð tveggja hringtorga, tenginga við Brekkuás, Klettahlíð og Elliðavatnsveg, auk nýrra gróðursvæða og mana. Í framkvæmdinni verða einnig fluttar veitulagnir Vatnsveitu Hafnarfjarðar, HS veitna og Mílu. Verkið verður unnið […]
Samið um kaup á gæðaritföngum fyrir grunnskólanemendur
Hafnarfjarðarbær hefur ritað undir samning við Pennann/Eymundsson um kaup á ritföngum fyrir nemendur í grunnskólum Hafnarfjarðar fyrir skólaárið 2018-2019. Samningsundirritunin er lok á löngu ferli sem staðið hefur frá byrjun árs 2018 við að skilgreina vörur og undirbúa útboð á ritföngum. Penninn/Eymundsson reyndist hlutskarpastur í útboðinu af þremur aðilum sem buðu í ritföngin. Alls reyndust […]