Category: News

Í öruggum höndum Securitas

Hafnarfjarðarbær og Securitas skrifuðu nýlega undir samning þess efnis að Securitas mun áfram sinna vöktun og lögbundinni úttekt á innbrota- og viðvörunarkerfum bæjarins til ársins 2021. Ásamt vöktun mun öryggisfyrirtækið hafa lögbundið eftirlit með brunaviðvörunarkerfum Hafnarfjarðarbæjar. Guðmundur Arason, forstjóri Securitas, segir áframhaldandi samstarf merki um að vel hafi tekist til undanfarin ár. „Við höfum gert […]

Skipulagsbreyting

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar að Hvaleyrarbraut 3.   Skipulags- og byggingarráð Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum 5.maí 2015, að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi lóðarinnar að Hvaleyrarbraut 3 í samræmi við 1. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í því að byggingarreitur er stækkaður og færður til á lóð og að leyfðar […]

Tuttugu hljóta menningarstyrk

Menningarstyrkir voru veittir við hátíðlega athöfn í Hafnarborg í dag.  Tuttugu verkefni í heild hlutu styrk að þetta sinni; einstaklingar, menningarhópar eða samtök sem eiga öll það sammerkt að tengjast Hafnarfirði með einum eða öðrum hætti. Styrkir menningar- og ferðamálanefndar Hafnarfjarðarbæjar eru afhentir einu sinni á ári til aðila og verkefna sem líkleg eru til […]

First of May

Við fögnum sumri með metnaðarfullri og fjölbreyttri dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Hátíðarhöld verða víðsvegar um bæinn í tilefni dagsins þ.á.m. hlaup, fjölskyldusmiðja, Sirkus Íslands, skátamessa, skrúðganga, fjölskyldudagskrá á Thorsplani í umsjón skátafélagsins Hraunbúa, söguganga, ömmu-og afabíó og komedy kvöld. Hér má sjá dagskrá Sumardagsins fyrsta Starfsfólk Hafnarfjarðarbæjar óskar íbúum, starfsmönnum fyrirtækja og stofnana, öðrum nærsveitungum […]

Bright days in Hafnarfjörður

Menningarhátíðin Bjartir dagar verður sett miðvikudaginn 20. apríl en hátíðin hefur verið haldin frá árinu 2003. Við það tækifæri verða styrkir menningar- og ferðamálanefndar afhentir við hátíðlega athöfn í Hafnarborg kl. 17. Bjartir dagar standa yfir í þrjá daga eða til sunnudagsins 24. apríl. Hátíðin er þátttökuhátíð og byggir á því að ýmsar stofnanir, félagasamtök, […]

Hjól og umferðaröryggi

Nú er daginn tekinn að lengja og þá vex umferð barna í umferðinni, bæði við leik og á leið til og frá skóla. Því er við hæfi að rifja upp nokkur atriði varðandi umferðaröryggi sem gott er að hafa í huga. Umferðarfræðsla í grunnskólum ber mestan árangur þar sem gott samstarf við heimili nemenda næst. […]

Viltu rækta þitt eigið grænmeti?

Hafnarfjarðarbær  býður bæjarbúum til útleigu garðlönd í Vatnshlíð við Kaldárselsveg. Um er að ræða 125 garða, stærð garðanna er um 40 fermetrar.  Leigjendur garða 2015 hafa forgang á leigu sömu garða og í fyrra, ef greitt er fyrir 1. maí.  Leigugjaldið 2016 fyrir hvern garð er 4.207 krónur. Hafnarfjarðarbær sér um ýmsa verkþætti  varðandi garðlöndin: Yfirfara […]

Suggestions from residents

Betur sjá augu en auga og á það við um umhverfi okkar rétt eins og allt annað. Starfsmenn Hafnarfjarðarbæjar eru á ferðinni um bæinn þessa dagana við hreinsun og  lagfæringu á því sem er að koma laskað undan vetri og nauðsynlegt er að laga.  Eitt af brýnum verkefnum er lagfæring á holum og götuskemmdum þannig […]

22 ára afmæli Vesturkots

Í dag fagnar leikskólinn Vesturkot 22ja ára afmæli skólans og er nú á afmælisdaginn að fá Grænfánann afhentan í annað sinn.  Innan leikskólans hefur mikil áhersla verið lögð á pappírssparnað, orkusparnað, flokkun á  rusli og umhverfiskennslu með börnum.  Aukin áhersla á umhverfismennt, matarsóun og lýðheilsu Undanfarna mánuði hefur leikskólinn bætt enn frekar í umhverfismenntina með því […]

Fanney ráðin fræðslustjóri

Fanney Dóróthe Halldórsdóttir hefur verið ráðin sviðsstjóri fræðslu og frístundaþjónustu Hafnarfjarðarbæjar. Starf fræðslustjóra var auglýst laust til umsóknar í febrúar og var Fanney valin úr hópi fjórtán umsækjenda. Fanney hefur gegnt stöðu skólastjóra Grunnskólans í Sandgerði frá árinu 2007 en hún hefur starfað við skólann frá árinu 1996. Viðamikil stjórnunarreynsla og þekking á íslensku skólasamfélagi […]