Vegan festival
Save the date for the Vegan Festival. The Icelandic Vegan Society announces with joy and pleasure that once again there will be…
Komdu og upplifðu sögu St. Jósefsspítala í tilefni 100 ára afmælisins. Opið hús frá kl. 13-15.
Boðið verður upp á sögugöngu um húsið þar sem saga St. Jósefsspítala, starfsemi hans og fólkið sem þar starfaði verður rifjuð upp. Á göngum hússins verða ljósmyndir og frásagnir úr sögu spítalans, auk myndasýninga á 2. og 3. hæð sem varpa ljósi á merka sögu St. Jó.
Við þetta sérstaka tilefni verður einnig afhjúpaður nafnalisti þeirra systra sem störfuðu á St. Jósefsspítala. Listinn var unninn að frumkvæði Hollvinafélags St. Jósefsspítala og er gjöf félagsins til varðveislu á sögu og arfleifð systranna sem lögðu grunn að starfseminni.
Við bjóðum alla velkomna til að kynnast sögu hússins, rifja upp minningar og fagna 100 ára afmæli St. Jósefsspítala.