Þriðjudaginn 1. október kl. 12 bjóðum við ykkur velkomin á næstu hádegistónleika í Hafnarborg en að þessu sinni verður Vera Hjördís Matsdóttir guest Antonia Hevesi, píanóleikara og listræns stjórnanda tónleikaraðarinnar. Yfirskrift tónleikanna er „Ást og lygar“ en á efnisskránni eru ástríðufullar aríur úr óperum eftir Mozart, Donizetti, Puccini og Gounod.

Vera Hjördís Matsdóttir, sópran, lauk meistaragráðu í klassískum söng við Konunglega tónlistarháskólann í Haag fyrr á þessu ári. Þar áður útskrifaðist hún með bakkalárgráðu við Listaháskóla Íslands vorið 2020. Kennarar hennar voru Hanna Dóra Sturludóttir, Kristinn Sigmundsson, Ólöf Kolbrún Harðardóttir og Þóra Einarsdóttir. Við útskrift frá Listaháskólanum var Vera valin sem styrkhafi úr Styrktarsjóði Halldórs Hansen. Hún var einnig í hópi þeirra sextán afburðanámsmanna sem hlutu námsstyrk frá Landsbankanum vorið 2023.

Vera kemur reglulega fram sem einsöngvari hér á landi en meðal nýlegra verkefna má nefna þátttöku í tónleikaröðinni Velkomin heim og framkomu með Lorelei Collective á Þjóðlagahátíðinni á Siglufirði. Vera fór einnig með aðalhlutverkið í nýrri íslenskri óperu eftir Sigrúnu Gyðu Sveinsdóttur, SKJÓTA, sem sýnd var í Ásmundarsal, auk þess sem hún kom fram sem einsöngvari í flutningi á Oratorio de Noël eftir Saint-Saëns í Seltjarnarneskirkju undir hljómsveitarstjórn Stefans Sands. Nú í vetur mun Vera svo fara með hlutverk Barbarínu í Brúðkaupi Fígarós eftir Mozart í uppsetningu Kammeróperunnar í samstarfi við Borgarleikhúsið. Vera fer einnig með sama hlutverk í óperunni Hliðarspori, sem samin er af Þórunni Guðmundsdóttur.

Antonia Hevesi, a pianist, has been the artistic director of the lunchtime concerts at Hafnarborg since their inception, and they have been a regular feature of the museum's programme since 2003. There, Antonía has been joined by many of the country's leading singers, with the aim of the concerts being to give visitors the opportunity to enjoy live music at their leisure. The lunchtime concerts are usually held on the first Tuesday of each month during the winter season.

The concert starts at 12 noon and will last for about half an hour. The venue opens at 11:30 am and the concert is open to all, subject to capacity. Admission is free.

Suggestion portal