Notice of planning – City of Hafnarfjörður

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar auglýsir hér með tillögu að nýju aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2025 – 2040 samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Tillagan sýnir áform sveitarfélagsins um landnotkun, náttúruvernd og þróun byggðar.  Fram koma megin leikreglur sveitarfélagsins um hvernig byggðin og bærinn mun þróast til næstu ára t.d. hvað varðar íbúðabyggð, atvinnusvæði, samgöngur og náttúru- og minjavernd.  Megintilgangur þess að kynna þessa tillögu er að tryggja að allir hagsmunaaðilar, þar á meðal almenningur, fái tækifæri til að koma með ábendingar og athugasemdir áður en endanleg tillaga er samþykkt.

Jafnframt er kynnt vinnslutillaga deiliskipulags Undirhlíðanámu og er hún kynnt samhliða tillögu að aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2025 – 2040 m.a. til að samnýta mikilvægt samráð við Vegagerðina, Náttúruverndarstofnun, Minjastofnun Íslands, HMS og heilbrigðiseftirlitið. Með gildistöku deiliskipulagsins mun deiliskipulag fyrir Undirhlíðar, sem var samþykkt 2006 m.s. br. falla úr gildi. Í samræmi við hættumat Veðurstofu Íslands er mikilvægt að gera ráð fyrir mögulegri þörf á varnargörðum.

Á kynningartíma má nálgast tillöguna á vef skipulagsgáttar skipulag.is og hfj.is/ skipulag undir málsnúmerunum 1446/2025 og 535/2026.

Athugasemdum og/eða ábendingum skal skila rafrænt í gegnum skipulagsgátt Skipulagsstofnunar fyrir 19. júní 2026, https://skipulagsgatt.is.

Ef óskað er frekari upplýsinga um tillögur í kynningu er hægt að senda fyrirspurn á netfangið: skipulag@hafnarfjordur.is.

Kynningarfundur verður að Ásvöllum (veislusal Hauka) miðvikudaginn 20. maí kl. 17.

Department of Environment and Planning, Hafnarfjörður

Suggestion portal