Afternoon Tones – Quartet by Albert Cirera
On International Jazz Day, Thursday 30 April at 6 pm, the quartet of the Spanish saxophonist Albert Cirera will perform at the next Afternoon Tones in Hafnarborg. Albert Cirera has…
Miðvikudaginn 7. júní kl. 20 will Ólöf Bjarnadóttir, safnafræðingur, leiða fyrstu menningar- og heilsugöngu sumarsins, þar sem skoðuð verða valin hús sem Guðjón Samúelsson (1887-1950), húsameistari ríkisins, teiknaði. Í Hafnarfirði má enda finna hús frá ólíkum tímabilum á ferli Guðjóns sem setja mikinn svip á bæinn og telja má til helstu kennileita hans. Í göngunni verða nokkur þessara húsa skoðuð og farið yfir sögu þeirra. Gengið verður frá Flensborg, um Skúlaskeið og miðbæinn og endar gangan við Hafnarborg.
Hafnarfjarðarbær býður upp á menningar- og heilsugöngur öll miðvikudagskvöld í sumar. Flestar göngurnar taka um klukkustund og hefjast kl. 20, nema annað sé tekið fram. Menningar- og heilsugöngur eru samstarfsverkefni Hafnarborgar, Byggðasafns Hafnarfjarðar, Bókasafns Hafnarfjarðar og Heilsubæjarins Hafnarfjarðar. Þátttaka er ókeypis og öll velkomin.