Hvatningarverðlaun 2026 – tilnefningar

News
Þekkir þú einstakling sem hefur haft jákvæð áhrif á líf grunnskólabarna?  Foreldraráð Hafnarfjarðar leitar að tilnefningum fyrir hvatningarverðlaun Foreldraráðsins. Tilnefningarfrestur er til 5. maí og verða verðlaunin afhent 21. maí nk.

Hvatningarverðlaun Foreldraráðs Hafnarfjarðar

Þekkir þú einstakling sem hefur haft jákvæð áhrif á líf grunnskólabarna?
Foreldraráð Hafnarfjarðar leitar að tilnefningum fyrir hvatningarverðlaun Foreldraráðsins. Tilnefndur aðili gæti til dæmis hafa:
  • Stuðlað að öflugu foreldrasamstarfi í grunnskólum
  • Staðið að frumkvöðlastarfi innan skóla, íþrótta eða tómstunda
  • Unnið að bættum tengslum heimilis, skóla og samfélags
  • Lagt fram óeigingjarnt starf í þágu grunnskólabarna
  • Sýnt sérstakan áhuga á velferð barna og unglinga
Sendu inn tilnefningu ásamt stuttum rökstuðningi til að aðstoða dómnefnd við valið. Tilnefningarfrestur er til 5. maí og verða verðlaunin afhent 21. maí nk.
Fylgið hlekknum til að tilnefna: https://shorturl.at/hAIIp
Látum gott starf fá þá viðurkenningu sem það á skilið.
Suggestion portal