Kastljós sett á heilsuna í Hafnarfirði
80 starfsmenn fá tækifæri til að fara í heilsufarsskoðun og fá ráðgjöf um bætt lífsgæði og heilsu sína. Fleiri fylgja í kjölfarið ef vel gengur. Bærinn og Lifeline Health hafa samið um þjónustuna.
Þekking fyrir bætta heilsu
Lifeline Health og Hafnarfjarðarbær hafa tekið höndum saman til að styðja starfsfólk bæjarins við að efla heilsu sína. 80 starfsmenn fá í fyrstu tækifæri til að fara í heilsufarsskoðun og fá ráðgjöf um bætt lífsgæði og heilsu sína. Fleiri ef vel gengur. Starfsfólkið eitt fær heilsufarsupplýsingarnar í hendur.
Victor Guðmundsson, læknir og einn af stofnendum nýju heilsuþjónustunnar Lifeline Health, segir starfsmenn Hafnarfjarðarbæjar verða meðal þeirra fyrstu sem prófa þjónustuna.
„Markmiðið er að hjálpa hverjum og einum að nálgast heilsu sína út frá fjórum grunnstoðum heilsu: hreyfing, næring, svefn og andleg heilsa.“
Styðja fólk til heilbrigðara lífs
Victor segir að þau hafi nú þegar séð dæmi um einstaklinga sem greinast með áhættuþætti á borð við hækkaðan blóðþrýsting eða merki um efnaskiptavandamál sem þeir voru ekki meðvitaðir um. Því sé hægt að koma fólki fyrr í réttan farveg innan heilbrigðiskerfisins.
„Áherslan hjá okkur er fyrst og fremst á forvarnir – að fræða, leiðbeina og styðja fólk til betra og heilbrigðara lífs, með tilheyrandi jákvæðum áhrifum fyrir einstaklingana sjálfa, vinnustaði þeirra, íslenska heilbrigðiskerfið og samfélagið í heild,“ segir hann.
Valdimar Víðisson bæjarstjóri segir þjónustuna frábæra til að styðja við starfsfólk sem vill bæta heilsu sína og fá til þess leiðsögn og stuðning fagaðila. „Það skiptir okkur miklu máli hérna í Hafnarfirði að starfsfólki líði vel en vellíðan í starfi er okkur hjartans mál.“
Heilsan sett í forgang
Lind Einarsdóttir, mannauðsstjóri Hafnarfjarðarbæjar, segir bæinn setja heilsuna í forgang. „Þetta tilraunaverkefni með Lifeline Health er frábært innlegg á þeirri leið. Það er ánægjulegt að sjá að áhersla bæjarins að því marki eru að skila árangri, en hér voru 4000 færri veikindadagar árið 2025 en árið 2024,“ segir hún.
„Við stefnum á að halda þeim árangri og viljum gera enn betur enda sjáum við skýr tengsl milli starfsánægju og veikindahlutfalls.“
Victor segir þau hjá Lifeline Health hafa heyrt að það skapist skemmtileg og jákvæð stemming á vinnustöðum í kringum heilsufarsskoðanirnar. „ Fólk fer almennt að huga meira að eigin heilsu og vellíðan, sem er frábært og akkúrat það sem við viljum sjá. Okkar von er líka að þessi jákvæðu áhrif smitist út fyrir vinnustaðinn – yfir á heimilin, fjölskyldurnar og samfélagið í heild.“
Myndatexti / Valdimar Víðisson bæjarstjóri, Victor Guðmundsson, einn stofnanda Lifeline Health, Orri Björnsson formaður bæjarráðs í neðri röð. Sigurður Nordal, sviðsstjóri stjórnsýslusvið Hafnarfjarðarbæjar, Lind Einarsstjóri mannauðsstjóri og Dröfn Gunnarsdóttir mannauðsráðgjafi í efri.