Gakktu í bæinn – Hafnarfjörður býður heim
Gakktu í bæinn verður á morgun, laugardaginn 9. maí. Hafnfirsk fyrirtæki víðsvegar um bæinn munu bjóða heim og afslátt af þjónustu sinni. Viðburðurinn er á vegum Markaðsstofu Hafnarfjarðar.
Gakktu í bæinn – laugardaginn 9. maí
Gulli bakari býður í morgunmat í glerhúsi á Thorsplani á morgun laugardaginn 9. maí. Bjarni Viðar bæjarlistarmaður opnar vinnustofu sína. Gina Tricot hefur falið gjafabréf víða um Fjörð. Þetta eru liðir í viðburðinum Gakktu í bæinn sem Markaðsstofa Hafnarfjarðar heldur utan.
Gakktu í bæinn verður nú haldið í annað. Hafnfirsk fyrirtæki víðsvegar um bæinn munu bjóða heim og afslátt af þjónustu sinni.
„Markmiðið með deginum er að sýna kraftinn, sköpunina og fjölbreytnina í verslun, veitingaflóru og atvinnulífi bæjarins og vekja athygli á fjölbreyttri og spennandi starfsemi fyrirtækja í Hafnarfirði,“ segir Þóra Hrund Guðbrandsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Hafnarfjarðar.
„Hugmyndin er einföld – að opna dyrnar, eiga samtal og sýna allt það góða og fjölbreytta sem atvinnulífið í Hafnarfirði hefur upp á að bjóða.“
Á þessum degi bjóða fyrirtækin Hafnfirðinga og aðra gesti að ganga í bæinn og eiga góðan dag í firðinum fagra. „Þetta er einstakt tækifæri til að kynnast ólíkum fyrirtækjum og starfsemi þeirra. Auk þess viljum við skapa líflega og skemmtilega stemningu í bænum þar sem menning og afþreying fá að njóta sín samhliða atvinnulífinu,“ segir hún.
Dagskrá – Meðal atriða
- 11:00-12:00 Gulli Arnar bakari
Gulli býður í morgunmat í glerhúsinu á Thorsplani. Hann ætlar að segja okkur söguna af því þegar hann stofnaði bakaríið og hvað það er sem drífur ástríðu hans áfram. - 11:00-16:00 Bjarni Sigurðsson keramiker, bæjarlistamaður Hafnarfjarðar verður með opna vinnustofu á Gakktu í bæinn. Léttar veitingar og einstakt tækifæri til að næla sér í 20% afslátt af hans frægu hönnun.
- 11:00-13:00 Women's strength
Kvennastyrkur býður gestum að kíkja við á Strandgötu 33 milli klukkan 12 og 14. Hægt verður að skoða aðstöðuna, salina og spyrja eigendurna spurninga. Þær sem koma fá frían vikupassa í rækt og tíma. Þær sem skrá sig á staðnum fá 20% afslátt af fyrsta mánuðinum. Kvennastyrkur verður með skemmtilega áskorun fyrir gesti og gangandi. - 12:00-16:00 Hafnarfjörður Ski Club
- 12:00- 19:00 Barbara kaffibar
Barbara kaffibar verður með gleðistund allan daginn. Nýir réttir á matseðli. Tilvalið að gera sér glaðan dag á fallegasta kaffibar landsins. - 12:00-16:00 Studio Flamingo
Hönnuðurinn Svana Lovísa opnar eilífðarblóma verslunina Studio Flamingo á Norðurbakka.
Frá kl.12-16 verður sýningin Mjúkt Kaos þar sem Svana sýnir nýja vöruhönnun ásamt listakonunni Anítu Guðlaugu Axelsdóttur hjá Kusk sem sýnir vegghengd textílverk.
- 12:00-17:00 The Shore Pub
Það er alltaf góð hugmynd að fá sér hádegismat á Fjörukránni. Fjörukráin var valið fyrirtæki ársins í Hafnarfirði á dögunum. Fjörukráin býður ostborgara og franskar & íslenska kjötsúpu og brauð á einstöku tilboði á 1.900 kr.
- 22:00 Ölhúsið
Endaðu daginn á kráar stemningu og trúbador á Ölhúsinu, Flatahrauni.Tilboð í verslunum - AndreA
Hjá Andreu finnur þú vandlega valið úrval af fatnaði, fylgihlutum og skartgripum. 15% sumarafsláttur. - A4
A4 býður 20% afslátt af öllum vörum í verslun. - Altis
Verslunin Altis í Bæjarhrauni veitir 20% afslátt af öllum vörum frá Under Armour.
- Brick
Viltu hafa það kósý heima áður en þú gengur í bæinn? Gríptu með þér dýrindis brunchpakka frá Brikk.
- Emom verslun
Emom er með æfinga- og hversdagsfatnað til sölu inni í Kvennastyrk, eigendur emom verslunar taka á móti gestum og veita ráðgjöf og bjóða afslátt af vörunum. - Gina Tricot
Sá á fund sem finnur! Falin gjafabréf í kringum Fjörð. Mæður sem versla þennan dag fá gjafapoka á meðan að birgðir endast í tilefni af mæðradeginum. - Burkni blómabúð
er með fulla búð af fallegum blómum fyrir mæðradaginn. Emil Axels, ungur og efnilegur saxófónleikari lífgar upp á stemmninguna. Smakk og 10% kynningarafsláttur af sælkeravörum frá Nicolas Vahé. - KAKI
Kaki verslunin á Strandgötu veitir 15% afslátt á öllum vörum ásamt sértilboðum á Gakktu í bæinn. - Strand49
Strand49 er 50% afsláttur af lagersölu og 20% afsláttur af öðrum vörum. Gildir ekki af húsgögnum.
