When words open the way to mathematics

News

Í grunnskólum landsins mæta kennarar sífellt fjölbreyttari nemendahópi. Samhliða aukinni umræðu um læsi og lesskilning hafa margir kennarar velt fyrir sér hvernig efla megi orðaforða og skilning nemenda í stærðfræði, ekki síður en í íslensku. 

„Við þurfum sameiginlegt tungumál í stærðfræði“

Í grunnskólum landsins mæta kennarar sífellt fjölbreyttari nemendahópi. Samhliða aukinni umræðu um læsi og lesskilning hafa margir kennarar velt fyrir sér hvernig efla megi orðaforða og skilning nemenda í stærðfræði, ekki síður en í íslensku. Þrír kennarar í Skarðshlíðarskóla þróa nýtt verkefni um orðaforða, skilning og aðgengilega stærðfræðikennslu.

Markviss orðaforðakennsla á öllum grunnskólastigum

Nína Guðrúnardóttir, Hildur Arna Håkansson og Hildur Sonja Guðmundsdóttir, kennarar í Skarðshlíðarskóla, vinna nú að þróunarverkefni sem ber heitið Reiknað með orðum. Verkefnið snýst um að byggja upp markvissa orðaforðakennslu í stærðfræði allt frá yngsta stigi og skapa samfellda hugsun í gegnum allt grunnskólastigið. Þær segja að hugmyndin hafi kviknað út frá reynslu þeirra sjálfra inni í skólastofunni, bæði af nemendum sem glíma við námsörðugleika og kennurum sem finna fyrir óöryggi gagnvart ákveðnum hugtökum í stærðfræði. „Við höfum í rauninni verið að spjalla saman um þetta alveg síðan eftir áramót,“ segir Nína, en hún kennir á yngsta stigi.

„Við fundum að það þarf að fara miklu markvissar í orðaforðakennslu strax frá byrjun. Nemendur þurfa að læra ákveðin hugtök á yngsta stigi og síðan þarf að halda áfram að byggja ofan á þau þannig að þegar þau koma upp á unglingastig sé þessi grunnur til staðar,“ bætir Hildur Sonja við. Hún er sérkennari í stærðfræðideild á unglingastigi. Hún segir einnig mikilvægt að það ríki samfella í kennslunni milli skólastiga. „Það þarf að vera ákveðið sameiginlegt tungumál. Að við séum öll að nota sömu hugtökin og sömu orð. Þá verður auðveldara fyrir nemendur að tengja nýja þekkingu við það sem þau kunna fyrir.“

Sumir kennarar hikuðu sjálfir í orðunum

Hin Hildur er stærðfræði- og náttúrufræðikennari á unglingastigi, ásamt því að vera með umsjón í 8. bekk. Hún segir ákveðið atvik í raun hafa orðið vendipunkti í umræðunni. „Ég var með námskeið fyrir kennara þar sem þau áttu að vinna verkefni eins og nemendur myndu gera. Þá kom í ljós að margir kennarar vissu til dæmis ekki hvað þættir í margföldun heita, eða hvað kvóti er í deilingu.“ Hún segir að kennararnir hafi í raun hikað í eigin útskýringum vegna þess að hugtökin voru ekki nægilega skýr. „Þá fórum við að velta því fyrir okkur hvernig við gætum aukið orðaforða, ekki bara hjá nemendum heldur líka meðal kennara. Við þurfum sjálf að skilja hugtökin vel til að geta kennt þau á góðan hátt.“

Þróun í skólum kallar á fjölbreyttari kennsluhætti

Hildur, Hildur Sonja og Nína eru sammála um að þróunin í skólunum kalli á fjölbreyttari kennsluhætti en áður. „Við erum að kenna ótrúlega fjölbreyttum hópi,“ says Hildur. „Það eru fleiri nemendur að greinast með lesblindu og ýmsa lestrarörðugleika. Svo eru líka nemendur sem eru til dæmis litblindir eða þurfa meira sjónrænt efni.“ Þær segja mikilvægt að stærðfræði verði ekki bara bundin við vinnubækur heldur tengd raunveruleikanum. „Það þarf að vera meira en bara: mældu hvað blýanturinn í bókinni er langur? Af hverju ekki að mæla bara hluti í kringum okkur? Hvað eru gluggarnir háir? Eru þeir allir jafnstórir? Hvað eru borðin löng?“

Markmiðið sé að nemendur upplifi stærðfræði sem lifandi og raunverulegt fag.

Margar leiðir til að sama markmiði

Að mati samstarfskvennanna getur óöryggi gagnvart faginu haft áhrif á kennsluna. „Mér finnst margir kennarar vera svolítið hræddir við stærðfræði,“ segir Hildur Sonja. „Ef þeim fannst hún erfið sjálfum þá halda þau sig oft bara við eina leið eða eina bók.“ Þær vilja því þróa verkefni sem sýna að það séu margar leiðir að sama markmiði. „Við viljum búa til verkefni þar sem bæði nemendur og kennarar sjá að það er ekki bara ein rétt leið til að skilja stærðfræði. Fólk hugsar á mismunandi hátt og notar mismunandi leiðir.“

Ein af stóru áskorununum sem þær hafa séð í kennsluefni er að það henti illa eldri nemendum sem þurfa einfaldari grunn. „Ef þú ert með nemanda á unglingastigi sem þarf efni af yngsta stigi, þá er það oft mjög barnalegt,“ says Hildur. „Það getur verið mjög niðurlægjandi fyrir nemendur.“ Þær vilja því þróa efni sem sé einfalt og skýrt án þess að vera barnalegt í framsetningu. „Við viljum að þetta nýtist bæði yngstu börnunum og líka eldri nemendum sem þurfa að styrkja grunninn sinn.“

Vilja byggja upp gagnabanka fyrir kennara

Kennararnir sjá fyrir sér að verkefnið verði aðgengilegur gagnabanki sem kennarar geti nýtt sér í daglegu starfi. „Það vantar svolítið samfellu í þetta,“ segir Nína. „Kennarar eru oft alltaf að finna upp hjólið aftur og aftur.“ Hugmyndin er að kennari geti farið inn í efnið og fylgt stigvaxandi uppbyggingu. „Að maður geti bara byrjað í samlagningu og svo haldið áfram skref fyrir skref án þess að þurfa alltaf að velta fyrir sér: hvað kemur næst?“

Þær vilja einnig þróa sjónrænt stuðningsefni fyrir skólastofur. „Við viljum búa til efni fyrir stærðfræðiveggi,“ says Hildur. „Ekki bara orð á blaði heldur lifandi og sjónrænt efni.“ Hugmyndin sé að kennarar geti prentað út efni, notað myndir úr umhverfinu og tengt stærðfræðina við daglegt líf nemenda. „Við erum svo oft sjálf alltaf að búa eitthvað til. Okkur langar að fleiri geti bara gengið að þessu tilbúnu.“

Hugmyndavinna fram á haust

Þótt verkefnið sé ekki formlega hafið eru þær þegar byrjaðar að safna hugmyndum og móta framtíðarsýn. „Formlega byrjar verkefnið ekki fyrr en í lok ágúst,“ says Hildur. „En núna erum við bara í hugmyndaflæði.“ Næsti vetur fari í að þróa efnið, prófa það og sjá hvað virkar best inni í kennslustofunni. 

In recent weeks and in the coming weeks, interviews with grantee from the Hafnarfjörður Education Fund be published on the media channels of the City of Hafnarfjörður. This gives residents and other interested parties the opportunity to gain a deeper insight into the excellent projects and creative school and leisure activities.

Suggestion portal