Tveir nýir ærslabelgir í Hafnarfirði á árinu
Ákveðið hefur verið að setja upp tvo nýja ærslabelgi í Hafnarfirði á árinu 2025 á völdum opnum svæðum í bænum sem ætluð eru til almennrar útivistar. Með framkvæmdinni er verið að svara ákalli íbúa um ærslabelgi víðar bænum og það innan sem flestra hverfa.
Uppfært 22. janúar 2025
Á fundi umhverfis- og framkvæmdaráðs Hafnarfjarðar þann 22. janúar 2025 var umræða um fyrirhugaða staðsetningu ærslabelgs á Holtinu tekin fyrir. Ráðið þakkar íbúum fyrir gagnlegar athugasemdir um staðsetningu ærslabelgs við Álfholt og hverfur frá fyrirhugaðri staðsetningu. Unnið er að tillögum að nýrri staðsetningu á Hvaleyrarholti.
Þar sem tveir hoppa saman þar er gaman
Ákveðið hefur verið að setja upp tvo nýja ærslabelgi í Hafnarfirði á árinu 2025 á völdum opnum svæðum í bænum sem ætluð eru til almennrar útivistar. Með framkvæmdinni er verið að svara ákalli íbúa um ærslabelgi víðar bænum og það innan sem flestra hverfa.
Hoppað á Hörðuvöllum og Holtinu
Á fundi umhverfis- og framkvæmdaráðs Hafnarfjarðar þann 30. október síðastliðinn var samþykkt að svara ákalli íbúa og fjölga ærslabelgjum í bænum. Til stendur að setja upp ærslabelg á opnu svæði sem afmarkast af Háholti, Hvaleyrarbraut og Álfholti og hinn á opnu svæði á Hörðuvöllum. Svæðin eru ætluð til almennrar útivistar og þarfnast því ekki breytinga á skipulagi. Fimm ærslabelgir eru í Hafnarfirði í dag og því verða ærsabelgirnir orðnir sjö þegar þessir tveir verða komnir í gagnið. Ærslabelgirnir eru opnir frá kl. 9 -22 alla daga vikurnar yfir sumartímann og njóta mikilla vinsælda meðal barna og ungmenna. Það verður hægt að hoppa ansi víða í Hafnarfirði á árinu 2025.
Yfirlit yfir staðsetningu ærslabelgja

