Address of the Valkyrie of Hafnarfjörður 2017
Eva Ágústa Aradóttir was the Poet Laureate of the town of Hafnarfjörður on National Day. Eva is the first trans woman to serve as poet laureate at a public celebration. Eva, a native of Hafnarfjörður, read a poem by Bryndís Björgvinsdóttir.
Eva Ágústa Aradóttir var fjallkona Hafnarfjarðarbæjar á
þjóðhátíðardaginn. Eva er fyrsta transkonan sem gegnir hlutverki fjallkonu við
opinber hátíðarhöld. Eva, sem er Hafnfirðingur í húð og hár, las ljóð eftir
Bryndísi Björgvinsdóttur. Fjallkonan er tákn eða kvengervingur Íslands. Fjallkonan
kom fyrst fram á Íslendingadeginum í Winnipeg í Kanada 1924 og eftir
lýðveldisstofnun á Íslandi 1944 hefur kona í skautbúningi jafnan flutt
fjallkonuljóð við hátíðahöld 17. júní.

Þjóðhátíðarljóð/Ávarp
fjallkonu í Hafnarfirði 2017
Viltu enn
teikna í Lækinn
sólarljós
og jökulsorfinn Hamar,
máv og svan – andlit okkar.
Viltu enn
vefa í hafið
bæinn minn
og í bláan fald þinn,
fisk og bát – dagana okkar.
————
Ekki aðeins eitt fjall,
ein heimsókn
eða eitt stakt örnefni.
Heldur heilt landslag,
þúsund brautir
og enn fleiri dvalarstaðir.
Við sem spjöllum við hraunið
eigum samskipti á skrýtnu tungumáli
sem aldrei verður lýst á blaði.
Hraunið kennir okkur allt um þolinmæði,
gefur í skyn; að sálin sé ekki í líkamanum,
– heldur sé líkaminn á sálinni –
að sálin sé það – margbrotin og allskonar.
Og að þannig haldi lífið áfram
í heilu landslagi, þúsund brautum – og enn fleiri dvalarstöðum.
—
Viltu enn
sverfa í hraunið
vistkerfi
og í mosa og lyng,
landslag og minningar – líkama okkar.
Bryndís Björgvinsdóttir