Aiming for the 50,000th visitor – Jóli Hólm at Bæjarbíó until 2029

News

„Jóli Hólm fer ekki úr Hafnarfirði. Það þyrfti eitthvað mikið að gerast svo það yrði. Bæjarbíó þyrfti að brenna,“ segir Sóli Hólm uppistandari og handritshöfundur, um sýningu sína Jóla Hólm sem hefur hreiðrað um sig í Bæjarbíói næstu árin. Bæjarbíó og Sóli Hólm hafa ritað undir samning um samstarfið til ársloka 2029.

Jóli Hólm í Bæjarbíói út 2029

„Jóli Hólm fer ekki úr Hafnarfirði. Það þyrfti eitthvað mikið að gerast svo það yrði. Bæjarbíó þyrfti að brenna,“ segir Sóli Hólm uppistandari og handritshöfundur, um sýningu sína Jóla Hólm sem hefur hreiðrað um sig í Bæjarbíói næstu árin. Stefnan er sett á að taka á móti 50 þúsundasta gestinum á sýningaröðina nú fyrir þessi jól.

„Jóli Hólm er heildarhugmynd sem á heima hér í hjarta Hafnarfjarðar,“ segir hann. Bæjarbíó og Sóli Hólm hafa ritað undir samning um samstarfið til ársloka 2029.

„Þetta er samningur sem gengur í báðar áttir. Ég tryggi mér húsið og Bæjarbíó sýningarnar. Þetta er því hagur okkar beggja,“ segir Sóli Hólm sposkur um samstarfið. „Húsið er mitt í desember – eins og það hefur verið undanfarin fjögur ár.“

Sýningar Sóla í  Bæjarbíói eru orðnar yfir 140. Hann hélt fyrstu uppistandssýninguna 2019 og svo reglulega undir merkjum Jóla Hólm frá 2022.

  • Árið 2022 = 27 sýningar
  • Árið 2023 = 34
  • 2024 = 39
  • 2025 = 41

„Það er ekki keppikefli fyrir mig að fjölga sýningunum ár frá ári. Markmiðið mitt er að vera með sýningu sem fólki langar að sjá aftur og aftur,“ segir hann. „Já, keppikeflið er að gera það góða sýningu að hún haldi eins lengi og röddin og limirnir leyfa.“

Valdimar Víðisson bæjarstjóri var viðstaddur undirritunina í þessu fornfræga menningarhúsi Hafnarfjarðar. „Það hefur verið magnað að sjá sýninguna draga sífellt fleiri í hjarta Hafnarfjarðar. Sóli Hólm hefur eflt bæjarbraginn heldur betur og frábært að geta ár eftir ár komið í hjarta Hafnarfjarðar og hlegið með sínu fólki.“

Sóli segir engan vettvang bjóða upp sama andrúmsloft og finnist í Bæjarbíói. „Hér er nánd við áhorfandann auk þess sem ég hugsa til heildaupplifunar þeirra sem koma. Gestirnir geta komið hingað, lagt bílnum í Firðinum, rölt sér á veitingastað og svo hingað á sýninguna.“ Hefðin sé orðin rík hjá mörgum og þekking staðarhaldara á því hvernig þjónusta eigi gestina áður en  þeir halda á sýninguna.

Páll Eyjólfsson, rekstrarstjóri Bæjarbíós, segir samstarfið mikilvægt fyrir Bæjarbíó. „Fyrir okkur er menning í miðbæ Hafnarfjarðar og Bæjarbíói mikilvæg. Þetta er hluti af því að sýna hvað við getum boðið fjölbreytta viðburði hér í Bæjarbíói.“

Sóli segir gefandi að sjá sama fólkið aftur og aftur í salnum. „Ég hef líka horft á fjóra ættliði saman á sýningunni. Það er það sem ég stend fyrir – Að fólk hafi gott aðgengi að mér og njóti tímans saman, kíki jafnvel í Jólaþorpið og sjái svo Jóla Hólm. Þú kemst í jólaskapið. Þetta er bara blanda sem virkar og maður skiptir ekki um hest í miðri á.“

Sóli segir sýninguna í mótun allt árið. Virk vinna hefjist svo í júlílok. „Við Halldór Smárason erum alltaf að kasta á milli okkur hugmyndum, sérstaklega að þessum tímalausu lögum í sýningunni. Ég hlakka virkilega til desembermánaðar.“

 

Suggestion portal