Amendment to the Master Plan of Hafnarfjörður 2013-2025 and the Detailed Plan for Suðurhöfn, Fornubúðir 5
Tillögur að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 vegna færslu á háspennulínum við Hamranes og breyting á aðalskipulagi og deiliskipulagi Suðurhafnar verða til sýnis í þjónustuveri Hafnarfjarðar Strandgötu 6 og hjá Umhverfis- og skipulagsþjónustu að Norðurhellu 2, frá 27.08. – 08.10.2018.
Amendment to the Master Plan of Hafnarfjörður 2013-2025
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum þann 22.8.2018 að auglýsa framlagða tillögu, dags. 08.08.2018, að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025, er varðar færslu á háspennulínu við Hamranes og að málsmeðferð verði í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Amendment to the Master Plan of Hafnarfjörður 2013-2025
Bæjarstjórn Hafnarfjaðar samþykkti á fundi sínum þann 22.8.2018 framlagða tillögu, dags. 08.08.2018, að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 og að málsmeðferð verði í samræmi við 31. gr. skipulagslaga 123/2010. Breytingin felst í að ákvæði um Suðurhöfn, hafnarsvæði (landnotkunarflokk H), verði ítarlegri.
Change to the detailed plan for Suðurhöfn, Hafnarfjörður – Fornubúðir 5
Bæjarstjórn Hafnarfjaðar samþykkti á fundi sínum þann 22.8.2018 framlagða tillögu, dags. 10.08.2018, að breytingu á deiliskipulagi Suðurhafnar í Hafnarfirði vegna lóðarinnar við Fornubúðir 5. Jafnframt var samþykkt að málsmeðferð verði í samræmi við 41. gr. skipulagslaga 123/2010. Í deiliskipulagsbreytingunni felst orðalagsbreyting í greinargerð til samræmis við breytingu á greinargerð aðalskipulags Hafnarfjarðar 2013-2025 og eru aðalskipulagsbreytingin og deiliskipulagsbreytingin auglýstar samhliða, sbr. 2. mgr. 41. gr. skipulagslaga 123/2010.
Tillögurnar verða til sýnis í þjónustuveri Hafnarfjarðar Strandgötu 6 og hjá Umhverfis- og skipulagsþjónustu að Norðurhellu 2, frá 27.08. – 08.10.2018.
- Breyting á aðalskipulagi – Breyting á tímabundinni legu Hamraneslína 1 og 2 við Skarðshlíð
- Breyting á aðalskipulagi – breyttur texti í greinargerð, kafla 2.2.7 Hafnarsvæði almenn ákvæði
- Breyting á deiliskipulagi fyrir Fornubúðir 5, reit 4.1 í deiliskipulagi Suðurhafnar Hafnarfjarðar
Further information is available from the Environmental and Planning Service.
Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar og skal þeim skilað skriflega til umhverfis- og skipulagsþjónustu Hafnarfjarðarbæjar, eigi síðar en 08. október 20108. Þeir sem eigi gera athugasemdir við breytinguna innan tilskilins frests, teljast samþykkir henni.
Environmental and Planning Services of Hafnarfjörður.
Planning Officer.