Solid financial position in a major year of investment

News

Ársreikningur Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið 2025 var lagður fram í bæjarráði í dag 16. apríl 2026. „Árið 2025 var ár mikillar uppbyggingar hjá Hafnarfjarðarbæ og sér þess merki í ársreikningnum,“ segir Valdimar Víðisson, bæjarstjóri.

Ársreikningur Hafnarfjarðarkaupstaðar 2025

Ársreikningur Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið 2025 var lagður fram í bæjarráði í dag 16. apríl 2026. Rekstrarafgangur fyrir A og B hluta nam 50 milljónum króna á árinu 2025, samanborið við 1.208 milljónir árið áður. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði nam 2.395 milljónum króna.

Rekstrarniðurstaða A hluta var neikvæð um 1.165 milljónir króna 2025 en var árið á undan var 107 milljón króna hagnaður. Veltufé frá rekstri A og B hluta nam 2.761 milljónum króna og var 147 milljónum króna undir áætlun. Veltufé frá rekstri svaraði til 5,1% af heildartekjum en það var 7,6% af heildartekjum árið á undan. Skuldaviðmið samstæðu Hafnarfjarðarbæjar nam 97% í árslok 2025.

Árið 2025 var ár mikillar uppbyggingar hjá Hafnarfjarðarbæ og sér þess merki í ársreikningnum,“ segir Valdimar Víðisson, bæjarstjóri. „Fjárfestingar í A-hluta jukust um 33% á milli ára sem skilar sér í auknum lífsgæðum og öflugri þjónustu fyrir bæjarbúa. Meðal annars tók bærinn í notkun þrjú stór íþróttamannviki á síðasta ári auk annarrar innviðauppbyggingar víða í bænum. Fjármagnskostnaður jókst lítilega frá fyrra ári en hækkun lífeyrisskuldbindinga nam 3 milljörðum króna í samanburði við 1 milljarð króna á árinu 2024. Hefði sú aukning ekki komið til hefði rekstur A-hluta bæjarsjóðs skilað afgangi. Auk þess finnur Hafnarfjarðarbær verulega fyrir hækkun launa eins og önnur sveitarfélög. Ársreikningurinn endurspeglar traustan rekstur og efnahagslegan styrk Hafnarfjarðarbæjar sem byggst hefur jafnt og þétt upp á undanförnum árum.“

Helstu tölur úr ársreikningnum

Rekstrartekjur af A og B hluta námu 54,4 milljörðum króna á árinu 2025 og jukust um 5,1 milljarð króna á milli ára. Þar af jukust tekjur vegna útsvars og fasteignaskatta um 3,2 milljarða króna. Í hlutfalli við heildartekjur námu útsvartekjur 51,5% og fasteignaskattar 9,0%. Rekstrargjöld voru 49,9 milljarðar króna og jukust um 6,0 milljarða króna á milli ára. Þar af námu laun og launatengd gjöld 26,3 milljarði króna og jukust um 2,2 milljarða króna á milli ára. Hlutfall launa og launatengdra gjalda sem hlutfall af heildartekjum Hafnarfjarðarbæjar var um 48,3%.

Fjármagnsgjöld voru 2.346 milljónum króna umfram fjármagnstekjur sem er 8,5 milljónum króna meira en árið áður. Fjármagnskostnaður var nánast á pari við áætlun eða um 74 milljónum króna yfir áætlun.

Rekstrarniðurstaða A og B-hluta var jákvæð um 50 m.kr. sem er um 1.035 m.kr. undir áætlun. Í því sambandi má nefna að tekjur af sölu byggingaréttar var um 2.287 milljónum króna undir því sem áætlað hafði verið fyrir árið og breyting lífeyrisskuldbindingar 1.473 milljónum króna yfir áætlun.

Skuldaviðmið Hafnarfjarðarbæjar fór úr 90% í 97% í lok árs og er verulega undir 150% skuldaviðmiði samkvæmt reglugerð um fjárhagsleg viðmið og eftirlit með fjármálum sveitarfélaga. Skuldahlutfall fór úr 133% í 130%.

Miklar fjárfestingar á árinu

Fjárfestingar á árinu 2025 námu 10,5 milljörðum króna sem er 26,5% aukning milli ára. Heildareignir í lok árs námu alls 108,7 milljörðum króna og jukust þær um 7,7 milljarða á árinu. Alls námu heildarskuldir og skuldbindingar sveitarfélagsins 70,7 milljörðum króna og jukust um 5,0 milljarða króna. Hjá Hafnarfjaðrarbæ nema lífeyrisskuldbindingar um 27% skulda og skuldbindinga sveitarfélagsins sem er allnokkru hærra hlutfall en hjá nágrannasveitarfélögum.

Eigið fé nam 37.949 milljörðum króna í árslok og hækkaði um 2,7 milljarða króna á árinu. Eiginfjárhlutfall er 34,9% sem er óbreytt hlutfall frá fyrra ári.

Íbúar Hafnarfjarðar voru 32.398 hinn 1. janúar 2026 og fjölgaði þeim um 873 íbúa á árinu 2025. Á síðastliðnum fjórum árum hefur íbúum í Hafnarfirði fjölgað um 3.351 íbúa.

Suggestion portal