The important work of the Centre – do you have a project?
Margir gestir þáðu boð í opið hús hjá Miðstöð vinnu og virkni í Hafnarfirði, nýju sameinuðu vinnu- og virkniúrræði fyrir fatlað fólk í bænum. Fjölmargir nýttu tækifærið til að heimsækja starfsstöðvar miðstöðvarinnar sem eru á tveimur stöðum í bænum, kynna sér fjölbreytta þjónustu og hitta starfsfólk og þátttakendur.
Miðstöð vinnu og virkni opnaði dyr sínar fyrir gestum
Margir gestir þáðu boð í opið hús hjá Miðstöð vinnu og virkni í Hafnarfirði, nýju sameinuðu vinnu- og virkniúrræði fyrir fatlað fólk í bænum. Fjölmargir nýttu tækifærið til að heimsækja starfsstöðvar miðstöðvarinnar sem eru á tveimur stöðum í bænum, kynna sér fjölbreytta þjónustu og hitta starfsfólk og þátttakendur.
Áhersla á þátttöku, virkni, vellíðan og tækifæri
Miðstöð vinnu og virkni sameinar fyrri starfsemi Geitunganna og hæfingarmiðstöðvarinnar í Bæjarhrauni undir einum hatti. Með sameiningunni verður þjónustan enn markvissari og fjölbreyttari, með áherslu á þátttöku, virkni, vellíðan og tækifæri hvers og eins til að njóta sín. Opið hús var haldið á tveimur starfsstöðvum. Á Selhellu 7 fengu gestir innsýn í starfsemi Umhverfisvaktarinnar, en á Suðurgötu 14 var kynnt fjölbreytt þjónusta á tveimur hæðum hússins. Þar er annars vegar lögð áhersla á tjáskipti og skynörvun og hins vegar líkamlega og félagslega virkni.
Tekur fagnandi á móti nýjum verkefnum
Miðstöðin tekur jafnframt fagnandi á móti nýjum og fjölbreyttum verkefnum frá fyrirtækjum, stofnunum og öðrum sem vilja vinna með öflugu og samviskusömu starfsfólki. Nú þegar sinnir hópurinn meðal annars pökkun fyrir fyrirtæki, samsetningu á kössum og öðrum umbúðum, útkeyrslu á milli staða og framleiðslu á sundpokum og seglum – svo fátt eitt sé nefnt. Þar leynast fjölmörg tækifæri til frekara samstarfs.
Dýrmæt leið til að auka sýnileika mikilvægrar þjónustu
Slík verkefni skipta miklu máli, bæði fyrir samfélagið allt og fyrir þá einstaklinga sem nýta þjónustuna og starfa innan Miðstöðvarinnar. Þar skapast vettvangur fyrir virkni, færniþróun, þátttöku og aukin lífsgæði, um leið og unnin eru verðmæt og nytsamleg störf. Gestir tóku framtakinu vel og ríkti hlýlegt og jákvætt andrúmsloft á báðum stöðum. Opið hús sem þetta er dýrmæt leið til að efla tengsl, auka sýnileika mikilvægrar þjónustu og minna á þann mannauð og styrk sem býr í fjölbreyttu samfélagi Hafnarfjarðar.
Nánari upplýsingar um Miðstöðina, vinnu og virkni á Facebook

