Category: News

Söfn bæjarins eru opin en viðburðum frestað

Söfn Hafnarfjarðarbæjar, Bókasafn Hafnarfjarðar, Byggðasafn og Hafnarborg halda óbreyttum opnunartíma þrátt fyrir samkomubann en boðuðum viðburðum hefur verið aflýst eða frestað, svo sem leiðsögnum og listasmiðjum, á meðan samkomubann er í gildi. Í Hafnarborg hafa yfirstandandi sýningar verið framlengdar. Sem fyrr verður allt kapp lagt á að taka vel á móti öllum gestum en jafnframt […]

Kynningarfundur í beinu streymi á vef og Facebook

Kynningarfundur skipulagslýsingar vegna breytingar á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013–2025 Reitur ÍB2, Hraun-vestur (Gjótur) verður haldinn á Norðurhellu 2 fimmtudaginn 19. mars 2020 frá kl. 17 – 18.  Í ljósi aðstæðna er fundi streymt beint á vef og Facebooksíðu Hafnarfjarðarbæjar og eru fundargestir hvattir til að nýta sér streymið frekar en að mæta á staðinn.  Bein útsending […]

Styrkir vegna hljóðvistar 2020

Hafnarfjarðarbær auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna viðgerða og framkvæmda á gluggum húsa við umferðarþungar götur. Frekari upplýsingar fást í þjónustuveri Hafnarfjarðar, Strandgötu 6 í síma 585-5500 og á vef bæjarsins.  Hér má finna upplýsingar um aðgerðaáætlun gegn hávaða í Hafnarfirði á árunum 2018-2023. Sótt er um á MÍNUM SÍÐUM Umsóknarfrestur er til 1. maí […]

Tímabundin lokun um Strandgötu sunnan Reykjanesbrautar

Fimmtudaginn 19. mars frá kl. 9:30-16 mun verktaki loka fyrir umferð um Strandgötu sunnan Reykjanesbrautar vegna framkvæmda við tvöföldun Reykjanesbrautar í Hafnarfirði. Hjáleiðir fyrir akandi vegfarendur eru um Krýsuvíkurgatnamót og Kaldárselsveg en opið er fyrir gangandi vegfarendur. Upplýsinga um tvöföldun Reykjanesbrautar Nú hyllir undir að lokið verði við tvöföldun Reykjanesbrautar í gegnum Hafnarfjörð. Framkvæmdir eru […]

Bæjarstjórnarfundur 18. mars

Boðað hefur verið til bæjarstjórnarfundar miðvikudaginn 18. mars. Formlegur fundur hefst kl. 14:00 í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg, Strandgötu 34. Hér er hægt að nálgast dagskrá fundar. Hér er hægt að horfa á fundinn í beinni útsendingu

Sundlaugar í Hafnarfirði verða opnar í samkomubanni

Sundlaugar í Hafnarfirði verða opnar í samkomubanni. Gufuböð verða lokuð sem og gufubaðsklefar en rennibrautir og pottar verða opnir og er þeim tilmælum beint til gesta að virða tveggja metra regluna sem nú er í gildi. Farið verður að tilmælum almannavarna um fjöldatakmarkanir en fækka þarf skápum sem eru í notkun vegna fjarlægðarreglna. Þá verður […]

Um starfsemi grunn- og leikskóla, íþrótta- og menningarmála

Tilkynning frá sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu um starfsemi grunn- og leikskóla, íþrótta- og menningarmála á tímum samkomubanns.  Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa síðan á föstudag unnið að útfærslu á skólastarfi, starfsemi íþróttamiðstöðva, sundlauga og menningarhúsa næstu vikna í samræmi við tilmæli sóttvarnarlæknis og stjórnvalda. Í ljósi þess að skólastarf verður með mismunandi hætti milli sveitarfélaga og innan […]

Sameiginleg yfirlýsing vegna áhrifa COVID-19 á skólastarf

Íslenskt samfélag tekst nú á við miklar áskoranir vegna heimsfaraldurs COVID-19. Gripið hefur verið til aðgerða sem eiga sér engin fordæmi á lýðveldistímum sem meðal annars snúa að skólastarfi í landinu. Í framhaldi af fundi sóttvarnarlæknis, fulltrúa almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra, mennta- og menningarmálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélags, Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, Reykjavíkurborgar og Kennarasambands Íslands, laugardaginn 14. […]

Starfsstöðvar hafa virkjað sínar viðbragðsáætlanir

Hafnarfjarðarbær hefur hækkað viðbúnaðarstig sveitarfélagsins til samræmis við neyðarstig almannavarna vegna smita á COVID-19 veirunni. Þrátt fyrir að ríkislögreglustjóri í samráði við sóttvarnalækni hafi fært stig almannavarna af hættustigi yfir á neyðarstig þá miðast viðbragðsáætlanir sveitarfélagsins við að halda úti skólastarfi og menningarstarfi með skerðingu og tryggja þá starfsemi og þjónustu sem þarf að haldast […]

Hafnarborg hlýtur Íslensku tónlistarverðlaunin

Menningarmiðstöðin Hafnarborg hlaut í vikunni Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir viðburð ársins (einstaka tónleika), í flokknum sígildri og samtímatónlist, fyrir opnunartónleika sýningarinnar Hljóðana, sem var hluti af dagskrá Myrkra músíkdaga.  Til hamingju Hafnarborg og listafólk á bak við þessa einstöku tónleika og sýningu!    Hafnarborg vill þakka slagverksleikaranum Jennifer Torrence, fyrir ógleymanlega túlkun á verkum þeirra Toms Johnson og […]