Category: News

A wide range of activities for town residents during lockdown

Nú eru tæpar þrjár vikur liðnar af samkomubanni vegna covid19 og hjá Hafnarfjarðarbæ leitar starfsfólk bæjarins leiða til að miðla heilsueflandi hugmyndum og viðburðum sem voru skipulagðir heim í stofu í gegnum samfélagsmiðla. Að sögn Andra Ómarssonar viðburðastjóra hafa íbúar verið sérstaklega duglegir að hreyfa sig og njóta útivistar síðustu daga og vikur. Bæjarblaðið Hafnfirðingur […]

Lockdown extended to curb the spread of Covid-19

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að framlengja til 4. maí þær takmarkanir á samkomum og skólahaldi sem áttu að falla úr gildi 13. apríl næstkomandi. Ákvörðunin er í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis. Þótt vel hafi gengið að halda útbreiðslu smita í skefjum veldur áhyggjum hve alvarlega veikum einstaklingum sem þurfa á gjörgæslu að halda hefur […]

A gift voucher for a good time in the heart of Hafnarfjörður

Starfsfólk Hafnarfjarðarbæjar hefur síðustu daga og vikur lagst á eitt í því mikilvæga verkefni að halda úti þjónustu sveitarfélagsins sem verður að haldast órofin á öllum viðbúnaðarstigum almannavarna. Þannig hefur mannauðurinn fetað saman óþekktan veg nýrra áskorana sem kallað hafa á endurskoðun og uppstokkun á veittri þjónustu og sveigjanleika í starfi starfsfólks sem mætt hefur […]

Covid-19 – what is and isn't allowed?

Á þessu upplýsingaspjaldi eru skýrar myndrænar leiðbeiningar um hvað má og má ekki gera meðan Covid19 faraldurinn gengur yfir.  Við erum ÖLL almannavarnir Það er afar mikilvægt að allir séu með reglurnar á hreinu og fari eftir þeim til fækka smitum. Þarna er sett fram með einföldum hætti hvað má gera eftir því hvaða hópi […]

Hafnarfjörður's Covid-19 measures approved

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti einróma í dag aðgerðaáætlun til þess að bregðast við afleiðingum COVID-19 faraldursins. Áætlunin er í 11 liðum þar sem heilsa og velferð íbúa og starfsfólks Hafnarfjarðarbæjar er sett í forgang, samhliða því sem brugðist er við efnahagslegum áhrifum faraldursins á íbúa, félög og fyrirtæki, auk sveitarfélagsins sjálfs. Sjá aðgerðaáætlun bæjarstjórnar Hafnarfjarðarbæjar vegna […]

Applications invited for six multi-unit plots in Hamranes

Á fundi bæjarráðs Hafnarfjarðar 8. apríl 2020 var samþykkt að auglýsa lausar til úthlutunar sex lóðir undir þriggja til fimm hæða fjölbýlishús með 148 íbúðum í Hamranesi, nýju íbúðarsvæði sunnan við Ásvallabraut sem tengir svæðið við helstu stofnleiðir og er jafnframt skammt frá stoppistöð almenningsvagna. Engin byggð er á svæðinu í dag en þar mun […]

We are ALL child protection. Let's be curious.

Barnavernd er dæmi um þjónustu sveitarfélagsins sem þarf að haldast órofin á öllum viðbúnaðarstigum almannavarna. Barnavernd er samstarfsverkefni allra þeirra sem vinna með börnum og hins almenna borgara sem oft á tíðum er í betri aðstöðu til að fylgjast með aðstæðum barna og tilkynna til barnaverndar ef það er eitthvað í umhverfi eða umgjörð barna […]

Deferral of property taxes on residential and commercial property

– sveitarfélögin í Kraganum leggja fram samræmda tillögu   Sveitarfélögin Kópavogur, Hafnarfjörður, Garðabær, Mosfellsbær og Seltjarnarnes munu leggja fram tillögu, í bæjarráðum eða bæjarstjórnum sveitarfélaganna í vikunni, um frestun fasteignaskatta og fasteignagjalda á eigendur íbúða- og atvinnuhúsnæðis. Tillagan gerir ráð fyrir að gjalddögum ársins verði fjölgað eða frestað á árinu, (eftir því sem við á […]

Discussion on the planning of the West End – second meeting

Hafnarfjarðarbær býður til samráðsfunda vegna skipulagsvinnu er snýr að Vesturbæ Hafnarfjarðar og Verndarsvæðis í byggð fimmtudaginn 5. mars og þriðjudaginn 31. mars næstkomandi. Seinni fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 31. mars kl.17-18:30  og verður streymt á vef og Facebook síðu Hafnarfjarðarbæjar. Þar verður hugmyndavinna kynnt íbúum. Á þessum fundi gefst áhugasömum tækifæri til að skoða og […]

Fine for breaching public health laws

Vegna ákvörðunar heilbrigðisráðherra um opinberar sóttvarnaráðstafanir í samræmi við sóttvarnalög nr. 19/1997, sem eru viðbrögð við COVID-19 heimsfaraldrinum, hefur ríkissaksóknari sent öllum lögreglustjórum á landinu fyrirmæli vegna brota á reglum heilbrigðisráðherra sem fjalla um samkomubann, lokun samkomustaða og starfsemi, sem og um einangrun smitaðra og um sóttkví. Eins og fram kemur í tilkynningu frá ríkissaksóknara […]