Category: News

Jafnrétti er ákvörðun

Ráðstefnan Jafnrétti er ákvörðun fór fram á Grand Hótel í vikunni þar sem mikill fjöldi þátttakenda fagnaði með aðilum sem hlutu viðurkenningu Jafnvægisvogar.  Á ráðstefnunni undirrituðu 11 fyrirtæki og þrjú sveitarfélög; Reykjavíkurborg, Hafnarfjarðarbær og Seltjarnarnesbær viljayfirlýsingu um að vinna að markmiðum Jafnvægisvogarinnar um 40/60 kynjahlutfall í framkvæmdastjórn og stjórn og bættust þar með í hóp […]

Virk nágrannavarsla líkleg til að fækka afbrotum

Tilkynnum afbrot í 112 og forðumst neikvæða umræðu á samfélagsmiðlum. Það hefur sýnt sig að virk nágrannavarsla fækkar innbrotum, skemmdarverkum og veggjakroti. Íbúar fylgjast betur með nærumhverfi sínu og allir sjá hag sinn í þeirri samvinnu. Síðustu daga hefur nokkuð borið á skemmdarverkum, sér í lagi í ákveðnum hverfum. Öll skemmdarverk og afbrot skal tilkynna […]

Viðurkenning fyrir verkefni í þágu fjöl-/tvítyngdra

Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) hlutu á dögunum viðurkenningu fyrir tvö Erasmus+ verkefni: „Stuðningur til að efla læsi og aðlögun fjöl-/tvítyngdra í grunnskólum“ og „Starfsspeglun í kennslu og aðlögun fjöl-/tvítyngdra í grunnskólum“. Verkefnin fengu viðurkenningu fyrir að stuðla að jöfnum tækifærum, en það voru Rannís og Landskrifstofa Erasmus+ sem veittu viðurkenninguna.  Þjálfun og uppbygging á […]

Leiguíbúðir í Skarðshlíð – frestur rennur út 10.nóvember

Leiguíbúðunum er ætlað að tryggja tekjulágum einstaklingum og fjölskyldum aðgengi að öruggu húsnæði í langtímaleigu. Hafnarfjarðarbær f.h. Skarðshlíðar íbúðarfélags hses auglýsti nýverið lausar til umsóknar leiguíbúðir við Hádegisskarð 12 og 16 í Skarðshlíð. Tíu íbúðum af tólf verður úthlutað samkvæmt fyrirliggjandi úthlutunarreglum og ákvæðum laga um almennar íbúðir. Leiguverð er í kringum 2.500.- kr. á […]

Bilun í dreifikerfi vatnsveitu

Vegna bilunar í dreifikerfi vatnsveitu má búast við þrýstingssveiflum á kalda vatninu um óákveðinn tíma. Unnið er að viðgerð og verða upplýsingar um stöðu mála og framhaldið  settar á vef og Facebook síðu sveitarfélagsins þegar þær liggja fyrir.  Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.   

A week-long focus on friendship

Þessa dagana stendur yfir VINAVIKA í grunnskólum Hafnarfjarðar sem hver og einn grunnskóli útfærir með sínum einstaka hætti. Vinavika er tilkomin vegna Dags gegn einelti þann 8. nóvember ár hvert sem helgaður er baráttunni gegn einelti. Grunnskólar í Hafnarfirði vildu strax taka baráttuna skrefinu lengra og leggja sérstaka áherslu á vináttu í heila viku í […]

Rammaskipulag hafnarsvæðis – frestur til athugasemda

Drög að rammaskipulagi Flensborgarhafnar og Óseyrarsvæðis hafa nú legið fyrir í rétt um mánuð eftir að hafa verið lögð fram til kynningar í kringum íbúafund 15. október síðastliðinn. Minnt er á að frestur til að skila inn ábendingum og hugmyndum er til og með föstudeginum 15. nóvember. Hægt er að senda tölvupóst á netfangið: hafnarfjordur@hafnarfjordur.is […]

Íslandsmeistaramót í Ásvallalaug – lokað um helgina

Íslandsmeistaramótið í 25m laug fer fram í Ásvallalaug dagana 8-10. nóvember 2019 í samstarfi við Íþróttasamband Fatlaðra. Sundfélag Hafnarfjarðar sér um framkvæmd mótsins. Ásvallalaug verður lokuð fyrir aðra gesti á meðan á móti stendur.   Við bendum íbúum og vinum Hafnarfjarðar á að Suðurbæjarlaug er opin um helgina. Frá kl. 6:30 – 20 á morgun föstudag, […]

Árið er 1949 – afmælisveisla fyrir sjötuga Hafnfirðinga

Sú skemmtilega hefð hefur skapast að bjóða öllum þeim Hafnfirðingum sem eru 70 ára á árinu til veislu í Hásölum. Hátt í 100 Hafnfirðingar mættu til slíkrar veislu síðastliðinn föstudag. Þar fékk hópurinn kynningu á þjónustu Hafnarfjarðarbæjar í þágu eldri borgara , fjölbreyttu félagsstarfi hjá Félagi eldri borgara í Hafnarfirði ásamt því að hlusta á áhugaverðar […]

Krýsuvíkurberg í Krýsuvík

Nýtt deiliskipulag fyrir Krýsuvíkurberg í Krýsuvík Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum þann 30. október 2019 að auglýsa nýtt deiliskipulag fyrir Krýsuvíkurberg í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagið afmarkast frá Suðurstrandarvegi suður með Hælsvíkurvegi að Krýsuvíkurbergi. Alls 114 ha að stærð. Deiliskipulagstillagan og greinargerð verða til sýnis í þjónustuveri Hafnarfjarðar 6 og […]