Tökur á nýjum ljúfsárum gamanþáttum með Ladda í aðalhlutverki eru hafnar. Eins og áður hefur verið talað um þá verður Hafnarfjörður vettvangur Ladda í sex þátta seríu og mun upptökuteymi vera á ferð og flugi um Hafnarfjörð nú í nóvember. Tökur munu standa yfir næstu 25 dagana og hófust þær við Suðurbæjarlaug í dag. Gunnar […]
Category: News
Staða mála á Sólvangi
Nýtt og glæsilegt 60 rýma hjúkrunarheimili á Sólvangi í Hafnarfirði var opnað formlega þann 17. júlí síðastliðinn. Nú er kominn rétt um mánuður síðan íbúar á gamla Sólvangi fluttu yfir á þann nýja og ekki annað að sjá en að þeim líki vel nýja búsetan enda aðstaða og þjónusta til fyrirmyndar og útsýnið fallegt. Sóltún […]
Fetaði ung slóðir lista og menningar
Ágústa Kristófersdóttir forstöðumaður Hafnarborgar er kvenskörungur mikill og kona allra verka. Hún hefur ósjaldan sést með hamar á lofti og málband um hálsinn við uppsetningu á nýjum sýningum og öðrum þeim verkefnum sem safnið hennar sér um eða tekur þátt í. Korteri seinna er hún komin í hlutverk gestgjafa og farin að taka á móti […]
The Great Anniversary and the Consecration of the Giantess
Um síðustu helgi áttu sér stað stórviðburðir í hafnfirsku íþróttalífi. Ekki nóg með að Badmintonfélag Hafnarfjarðar hafi fagnað 60 ára afmæli og því að fá íþróttahúsið við Strandgötu undir rekstur félagins þá fagnaði Fimleikafélag Hafnarfjarðar 90 ára afmæli sínu og formlegri opnun Skessunnar. Starfsemi íþróttafélaga hefur breyst mikið undanfarin ár og er tilkoma Skessunnar liður […]
Norska sveitarfélagasambandið heimsækir Hafnarfjörð
Hópur frá norska sveitarfélagasambandinu, sérfræðingar um heilsu- og velferðarmál, komu í vettvangsferð til Íslands á dögunum til að kynna sér forvarnarverkefni á vegum íslenskra sveitarfélaganna. Hópurinn heimsótti Hafnarfjörð í dag og fékk þar kynningu á Lífsgæðasetri St. Jó., heilsueflingu eldri borgara og BRÚNNI í húsnæði Lífsgæðaseturs St. Jó. Hópurinn hefur verið á ferð um stór-höfuðborgarsvæðið […]
Leiguíbúðir rísa hratt við Hádegisskarð
Tólf leiguíbúðir rísa hratt á tveimur lóðum við Hádegisskarð í Skarðshlíð þessa dagana. Fyrstu íbúðinni var komið fyrir í gær og er gert ráð fyrir að íbúðirnar tólf verði komnar á sinn stað í vikulok. Hafnarfjarðarbær fær íbúðirnar afhentar fullbúnar um miðjan nóvember. Þessum leiguíbúðunum er ætlað að tryggja tekjulágum einstaklingum og fjölskyldum aðgengi að […]
Hafnfirðingur nr. 30.000 er nýfædd stúlka
Hafnfirðingar hafa nú náð þeim áfanga að vera orðnir þrjátíuþúsund talsins. Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, fagnaði áfanganum með heimsókn til stúlku Sigurðardóttur og færði henni og fjölskyldu hennar vandaða hafnfirska list og gjafir sem endurspegla áherslur sveitarfélagsins m.a. í umhverfismálum, læsi, heilsueflingu og hamingju. Hafnfirðingur númer 30.000 er lítil stúlka fædd 15. október síðastliðinn, dóttir […]
Samningur við Sambo 80
Undirritaður hefur verið samningur til tveggja ára við nýtt íþróttafélag sem kallast Sambo 80. Hafnarfjarðarbær leggur félaginu til aðstöðu í gömlu slökkvistöðinni, á annarri hæð þar sem skrifstofur slökkviliðsins voru. Sambo 80 skuldbindur sig til að skipuleggja námskeið og kynna íþróttina fyrir börnum, ungmennum og fullorðnum. Sambo er bland af sjálfsvarnaríþrótt og bardagaíþrótt sem rekur […]
Lokun á rampi frá Krýsuvíkurvegi
Vegna vinnu við tvöföldun Reykjanesbrautar í gegnum Hafnarfjörð þarf að loka suðaustur rampi frá Krýsuvíkurvegi inn á Reykjanesbraut í átt til Reykjavíkur. Verið er að malbika og leggja lokahönd á frágang lagna á þessu svæði. Sjá nánar á mynd Gera má ráð fyrir að rampurinn verði lokaður frá og með 30. október eftir morgunumferð. Umferð […]
Ræktun sumarblóma og matjurta
Hafnarfjarðarbær og Kópavogsbær óska eftir tilboðum í ræktun sumarblóma og matjurta fyrir árin 2020-2022. Útboðsgögn verða afhent rafrænt og skulu þeir sem óska eftir útboðsgögnum fyrir verk þetta senda tölvupóst á netfangið ingibjorgs@hafnarfjordur.is frá og með mánudeginum 28. október nk. Í tölvupósti skal koma fram nafn tengiliðar vegna útboðsins, símanúmer, netfang og nafn fyrirtækis. Tilboð […]