Á undanförnum mánuðum hefur farið fram vinna í starfshópi við vinnulag við gerð menntastefnu Hafnarfjarðar og samþykkt í fræðsluráði að hefja vinnu við gerð sjálfrar menntastefnunnar nú á haustdögum. Menntastefna Hafnarfjarðar á að hafa samhljóm með gildandi lögum og reglugerðum sem gilda um nám, kennslu, frístundastarf og alla almenna vellíðan og þroska barna og ungmenna […]
Category: News
VITINN – nýtt hlaðvarp Hafnarfjarðarbæjar
Hafnarfjarðarbær kynnir til sögunnar Vitann, nýtt hlaðvarp Hafnarfjarðarbæjar. Um er að ræða tilraunaverkefni og nýja og spennandi leið í upplýsingagjöf til íbúa og allra þeirra sem áhugasamir eru um sveitarfélagið, viðfangsefni þess, verkefni og þjónustu. Sveitarfélagið hefur stækkað mikið undanfarin misseri, íbúarnir á öllum aldri með ólík áhugamál og nýta ólíkar leiðir til upplýsingaöflunar. Hlaðvarpið […]
Hrafnista emerged victorious
Fulltrúar bæjarstjórnar Hafnarfjarðar öttu kappi við heimilisfólk Hrafnistu í árlegu púttmóti sem fram fór í dag. Keppt var um farandbikar og lagði heimilisfólkið bæjarfulltrúana að velli, líkt og fyrri ár. Sú skemmtilega hefð hefur skapast á síðustu árum að haldið hefur verið púttmót á Hrafnistu í Hafnarfirði þar sem bæjarstjórn Hafnarfjarðar og bæjarstjóri, hafa att […]
Hraun vestur – Gjótur. Frestur til athugasemda framlengdur
Skipulags- og byggingarráð hefur samþykkt að framlengja frest til athugasemda vegna deiliskipulags Hraun vestur. Bréf þess efnis hefur verið sent til hagsmunaaðila. Vakin er athygli hagsmunaaðila og nágranna á þessu og eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ákveðið hefur verið að framlengja auglýsingartíma tillögunnar og verður […]
Fræðsla og aðstoð á sviði sorgarúrvinnslu
Sorgarmiðstöðin og Hafnarfjarðarbær hafa gert með sér samstarfssamning til þriggja ára sem felur meðal annars í sér að Sorgarmiðstöðin fær aðstöðu í nýju Lífsgæðasetri í St. Jó gegn því að bjóða upp á fræðslu á sviði sorgarúrvinnslu fyrir grunnskóla og stofnanir bæjarins á sama tíma og þjónustan verður aðgengileg fyrir íbúa og aðra á besta […]
Fræðslufundir fyrir foreldra um mikilvægi málþroska
Hafnarfjarðarbær stendur fyrir fræðslu fyrir foreldra ungra barna með það að markmiði að auka vitund foreldra um mikilvægi málþroskans. Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt að með örvun málþroska er hægt að styrkja undirstöðuþætti læsis og styðja við góðan námsárangur. Þetta verkefni er hluti af læsisstefnu Hafnarfjarðar og er unnið í nánu samstarfi við Bókasafn Hafnarfjarðar og […]
Lítil vatnsþrýstingur hér og þar vegna vinnu í vatnsveitu
Vegna viðhaldsvinnu hjá Vatnsveitu Hafnarfjarðar má búast við lágum vatnsþrýstingi þriðjudagskvöldið 10. september. Reiknað er með að fullur þrýstingur verði kominn á kerfið strax á miðvikudagsmorgun. Íbúum er bent á að nota ekki tæki sem viðkvæm eru gagnvart lágum þrýstingi eins og td þvottavélar og uppþvottavélar. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann […]
Snyrtilegustu lóðirnar og garðarnir
Kirkjugarðar Hafnarfjarðar fengu heiðursskjöld Snyrtileikans 2019 sem afhentur var við hátíðlega athöfn í Gróðrarstöðinni Þöll. Sex eigendur sérbýlishúsa fengu viðurkenningar fyrir fallega og vel hirta garða auk þess sem fjölbýlishúsalóðin við Skipalón fékk sérstaka viðurkenningu fyrir snyrtilega aðkomu og aðstöðu fyrir gesti, fallegan gróður og leiksvæði sem tengist vel inn á dvalarsvæðið. Fjöldi ábendinga bárust […]
Staða mála og næstu skref í skipulagi miðbæjar
Til og með 20. september 2019 gefst íbúum og öðrum áhugasömum tækifæri til að senda inn athugasemdir og viðbætur við fyrirliggjandi drög að skýrslu frá starfshópi um skipulag miðbæjar Hafnarfjarðar. Mikilvægt er að halda því til haga að þær teikningar sem liggja fyrir eru ekki hluti af vinnu eða tillögum starfshópsins. Þær þarf að vinna […]
Haustsýning Hafnarborgar 2020 – Óskað eftir tillögum
Eins og undanfarin ár gefst sýningarstjórum tækifæri til að senda inn tillögur að haustsýningu næsta árs í Hafnarborg. Haustsýningaröðin hóf göngu sína árið 2011 og hafa síðan verið settar upp níu sýningar í röðinni. Haustsýning Hafnarborgar í ár, Allt á sama tíma, sem opnaði 30. ágúst, var valin með sama hætti, úr þeim tillögum sem […]