Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í 1. áfanga útskipta í LED væðingu götuljósa. Áætlað er að skipta um 250 lampa á árinu 2019 og auglýsir Hafnarfjarðarbær eftir tilboðum í þessa lampa. Tilboð verða opnuð hjá umhverfis- og skipulagsþjónustu þann 2. maí 2019 kl. 10:00. Beiðni um útboðsgögn skal senda á ishmael@hafnarfjordur.is
Category: News
Aðrein og frárein lokaðar fimmtudaginn 11. apríl
Aðrein og frárein milli Reykjanesbrautar og Strandgötu í Hafnarfirði verða lokaðar fimmtudaginn 11. apríl. Líklegt er að svæðið verði lokað allan daginn og jafnvel undir morgun föstudaginn 12. apríl. Verið er að grafa í sundur aðrein og frárein til að leggja niður hitaveitulögn. Hægt er að fara um nýju mislægu gatnamótin við Hellnahraun, Hvaleyrarhverfi og […]
HREINSUM HAFNARFJÖRÐ – á Snapchat og Instagram
Gunnella Hólmarsdóttur mun á næstu vikum halda úti Snapchat og Instagram reikningunum: HREINSUM HAFNARFJÖRÐ. Þar deilir hún hagnýtum leiðum og aðferðum við m.a. flokkun á heimilissorpi og plokkun í nærumhverfinu auk þess að veita önnur ráð. Gunnella Hólmarsdóttir er tveggja barna móðir í Kinnunum sem, líkt og margir aðrir, veltir því fyrir sér á degi hverjum […]
Hreinsum Hafnarfjörð – hreinsum nærumhverfið
Dagana 11. apríl – 20. maí standa yfir hreinsunardagar í Hafnarfirði undir yfirskriftinniHREINSUM HAFNARFJÖRÐ. Íbúar í öllum hverfum Hafnarfjarðar eru hvattir til að taka virkan þátt í hreinsun áHafnarfirði. Hreinsunardagur í götunni eða hverfinu býður upp á skemmtilegasamveru. Beiðni um að pokar séu sóttir eftir hverfahreinsun skal senda á hafnarfjordur@hafnarfjordur.is – nú þegar eru einhver […]
Garden waste collected
Dagana 11. apríl – 20. maí standa yfir hreinsunardagar í Hafnarfirði undir yfirskriftinni HREINSUM HAFNARFJÖRÐ . Íbúar í öllum hverfum Hafnarfjarðar eru hvattir til að taka virkan þátt í hreinsuninni og er tilvalið á meðan á hreinsunardagar standa yfir að taka til hendinni í garðinum, snyrta runna og beð. Vakin er sérstök athygli á því […]
Vorsópun hefst á morgun!
Sópun á götum, stéttum og göngustígum í Hafnarfirði hefst á morgun þriðjudaginn 9. apríl. Í fyrra fór sópun af stað um svipað leyti en farið að viðra nokkuð vel til vorverka. Bænum er skipt upp í 15 hverfi og eru hverfin skiltuð upp degi fyrir sópun með tilkynningu um fyrirhugaða sópun. Samhliða verða eyjur þvegnar. […]
Heilsuefling fyrir fatlað fólk – styrkur úr Lýðheilsusjóði
Skammtímavistunin Hnotubergi fékk á dögunum styrk frá Lýðheilsusjóði til verkefnisins: Heilsuefling fyrir fatlað fólk. Mikill metnaður og áhugi er fyrir því að efla lýðheilsu fólks með fötlun og verður áhersla lögð á það í ár að hvetja þjónustunotendur til hreyfingar og þá til að prófa hreyfingu eða tómstund sem þeir hafa ekki prófað áður. Markmiðið […]
Ungmennaráð Sveio og Hafnarfjarðar hittast
Átján norsk ungmenni komu í heimsókn til Hafnarfjarðar á dögunum ásamt fræknu fylgdarliði. Ungmennaráð frá Sveio í Hordaland í Noregi hafði samband við Ungmennaráð Hafnarfjarðar á síðasta ári og leiddi samtalið hópinn ásamt bæjarstjóra Sveio, sem er lítið 3.600 manna samfélag, í heimsókn til Hafnarfjarðar dagana 28. – 31. mars. Tilgangur ferðarinnar var að skoða […]
Stóra upplestrarkeppnin vex og dafnar – 29 lokahátíðir þetta vorið
Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í Hafnarfirði var haldin í Hafnarborg í gær í 23. skipti. Allir grunnskólar Hafnarfjarðar senda fulltrúa til keppninnar, tveir koma frá hverjum skóla og voru keppendur í ár því 14 talsins. Á hátíðinni fluttu nemendur brot úr skáldverki og ljóði og að lokum valdi dómnefnd þrjá bestu upplesarana og veitti þeim sérstaka […]
Innritun á leikskóla er hafin
Í dag hófst innritun í leikskóla Hafnarfjarðar fyrir haustið 2019. Í þessari úthlutun fá börn sem eru á flutningi innan leikskóla Hafnarfjarðar og börn sem fædd eru frá júlí – des 2017 bréf um úthlutun. Börn fædd í janúar – maí 2018 fá einnig úthlutun í leikskóla frá og með hausti. Sú úthlutun fer fram […]