Category: News

Aksturs- og skotæfingasvæði í Kapelluhrauni

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar auglýsir hér með tillögu að breytingu á deiliskipulagi aksturs- og skotæfingasvæðis í Kapelluhrauni í Hafnarfirði skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr 123/2010. Í tillögunni er verið að bæta við og breyta núverandi byggingarreitum ásamt því að búa til nýja lóð eins og uppdráttur dags. 03.10.2018 gerir grein fyrir. Breytingartillagan verður til sýnis […]

Rafmagnsleysi í Hafnarfirði

Rafmagnslaust er þessa stundina á Völlunum í Hafnarfirði og að hluta á Holtinu og í Áslandi. Samkvæmt upplýsingum frá Landsneti þá varð útleysing á 11 kV útgangi SP2 í Hamranesi sem olli rafmagnsleysi á þessum stöðum. Líkleg orsök útleysingar er að grafið hafi verið í jarðstreng. Unnið er að viðgerðum.

Nýtt ungmennahús heitir Hamarinn

Ungmennahús, sem nýlega tók til starfa í gömlu Skattstofunni, hefur fengið nafnið Hamarinn. Nýtt nafn var kosið á ungmennahúsið í gærkvöld á stofnfundi húsfélagsins við Suðurgötu 14.  Nafnið Hamarinn varð fyrir valinu úr þeim 18 tillögum sem lagðar voru fram en nafnið er dregið af því fallega útivistarsvæði sem staðsett er stutt frá ungmennahúsinu sjálfu.  […]

Tvö tónlistaratriði áfram í Nótuna

Það styttist í Nótuna (uppskeruhátíð tónlistarskóla) en svæðistónleikar eru í gangi  þessa dagana um allt land þar sem valin eru 7 atriði frá hverju svæði á lokahátíð Nótunnar sem fram fer á í menningarhúsinu Hofi á Akureyri þann 6. apríl nk. Tvö atriði frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar voru valin um helgina til að taka þátt í […]

Bæjarstjórnarfundur 20.mars

Boðað hefur verið til bæjarstjórnarfundar miðvikudaginn 20. mars. Formlegur fundur hefst kl. 14:00 í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg, Strandgötu 34. Hér er hægt að nálgast dagskrá fundar. Hér er hægt að horfa á fundinn í beinni útsendingu

Þjónustuver opnar 9:30 á mánudag

Mánudaginn 18. mars mun Þjónustuver Hafnarfjarðarbæjar opna kl. 9:30 í stað 8:00 vegna starfsmannafundar.  Fyrirfram þakkir fyrir sýndan skilning!  

Næringarsáttmáli og samræmdir matseðlar

Leikskólar Hafnarfjarðar starfa eftir nýjum næringarsáttmála og elda eftir samræmdum matseðlum.  Vinna við verkefnið hefur staðið yfir um nokkurt skeið og hófst markviss innleiðing þess fyrir rétt um ári síðan. Afraksturinn byggir á mikilli greiningarvinnu, næringarútreikningum, samstarfi og samtali viðeigandi aðila ásamt mati nemenda og starfsmanna. Næringarsáttmálinn hefur nú formlega verið gefinn út.  Samræmdir matseðlar […]

Nýtt tilraunaverkefni lögreglu og sveitarfélags

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Hafnarfjarðarbær hafa tekið höndum saman og komið á samstarfs- og þróunarverkefni sem hefur þann tilgang að efla samvinnu þessara aðila í málum barna og unglinga. Um er að ræða tilraunaverkefni til eins árs sem fer af stað nú um miðjan mars og hlýtur styrk frá Lýðheilsusjóði. Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á […]

Fyrsta skóflustungan við nýjan búsetukjarna

Fyrsta skóflustungan að nýjum búsetukjarna við Arnarhraun 50 var tekin í dag en þar stendur til að byggja sex íbúða kjarna ásamt sameiginlegu rými. Gengið var til samninga við Framkvæmdafélagið Arnarhvoll ehf. um bygginguna í árslok 2018 og eru verklok áætluð í mars 2020. Um er að ræða sex íbúða sérbýli með fullu aðgengi fyrir […]