Category: News

Ósanngjörn umræða um skólasamfélagið í Hafnarfirði

Kennaraskortur er landlægur vandi og ekki eingöngu við um Hafnarfjarðarbæ. Staðreyndin er sú að færri eru að útskrifast sem kennarar nú en áður og því er baráttan um fagfólkið mikil. Allir hagsmunaaðilar þurfa að leggjast á eitt, tala þessi faglegu störf upp og koma þeim á þann stall sem þau með réttu eiga að vera […]

Fyrir hvað stendur Hafnarfjörður í þínum huga?

FYRIR HVAÐ STENDUR HAFNARFJÖRÐUR Í ÞÍNUM HUGA? Taktu þátt í gerð markaðsstefnumótunar fyrir Hafnarfjörð! Markaðsstofa Hafnarfjarðar, fyrir hönd Hafnarfjarðarbæjar, vinnur að gerð markaðsstefnumótunar fyrir Hafnarfjörð í samstarfi við Manhattan Marketing.  Verkefnið felst í að búa til heildstæða markaðsstefnumótun og aðgerðaráætlun fyrir Hafnarfjörð sem spennandi stað til að búa á, starfa, reka fyrirtæki og heimsækja. Lögð […]

Bæjarstjórnarfundur 31. október

Boðað hefur verið til bæjarstjórnarfundar miðvikudaginn  31.október. Fundurinn hefst kl. 17:00 í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg, Strandgötu 34.     Hér er hægt að sjá dagskrá fundar Hér er hægt að horfa á fundinn í beinni útsendingu

Nýr búsetukjarni fyrir fatlað fólk

Hafnarfjarðarbær, fyrir hönd Arnarhrauns 50 íbúðafélags hses, hefur gengið til samninga við Framkvæmdafélagið Arnarhvoll ehf. um byggingu á 6 íbúða búsetukjarna ásamt sameiginlegu rými. Framkvæmdir hefjast strax á næstu dögum og eru verklok áætluð í mars 2020. Öll sérbýlin eru hönnuð samkvæmt hugmyndafræði algildrar hönnunar, hönnun fyrir alla – aðgengi fyrir alla. Í því felst […]

Lausar lóðir í Skarðshlíð

Hafnarfjarðarbær auglýsir lóðir til einstaklinga og lögaðila í fjölskylduvænu íbúðahverfi í Skarðshlíð. Í skipulagi og hönnun er rík áhersla lögð á heildræna sýn, vistvænt skipulag, grænt yfirbragð og fjölbreytt útisvæði. Svæðið liggur sunnan og vestan Ásfjalls og er skjólsælt svæði umvafið gríðarlegri náttúrufegurð.  Um er að ræða einbýlishúsa-, parhúsa-, raðhúsa-, tvíbýlishúsa- og fjölskylduhúsalóðir til einstaklinga […]

Fornubúðir 5 og Hamranes. Breyting á aðal- og deiliskipulagi svæða

Breyting á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum þann 19.9.2018 að endurauglýsa framlagða tillögu, dags. 8.8.2018/lagf. 13.9.2018, að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025, er varðar færslu á háspennulínu við Hamranes og að málsmeðferð verði í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breyting á aðalskipulagi. Svæði: Hamranes Breyting á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 […]

Námsefnisgjöf til leikskóla

Fulltrúar í Lionsklúbbi Hafnarfjarðar afhentu á dögunum námsefnispakka til nemenda á Leikskólanum Víðivöllum. Eru nú allir leikskólar í Hafnarfirði komnir með fjölþættan námsefnispakka í hendurnar sem Menntamálastofnun, í samstarfi við Lions, er að færa öllum leikskólum landsins. Í pakkanum er að finna spjöld með bókstöfum sem hægt er að nota á fjölbreyttan hátt, einnig veggspjöld […]

Truflanir á afhendingu vatns í Norðurbæ

Vegna viðgerða má búast við truflunum í afhendingu vatns í húsum við Norðurbraut, Hraunbrún og Garðaveg í dag. Reiknað er með að lokað verði fyrir vatnið kl 10 og vonast er til að viðgerð ljúki um hádegi. Þökkum sýndan skilning!

Ásvallalaug lokuð næstu daga

Ásvallalaug verður takmarkað opin dagana 20. -23. október. Á morgun laugardag verður laugin lokuð allan daginn vegna sundmóts og það til hádegis á sunnudag.  Sundlaugin er opin frá kl. 14-17 á sunnudag.  Í vetrarfríi grunnskóla Hafnarfjarðar, dagana 22. og 23. október, verður laugin lokuð vegna nauðsynlegra viðhaldsverkefna. Suðurbæjarlaug verður sem fyrr opin um helgina frá […]

Vegna umræðu um mötuneyti í Áslandsskóla

Á fyrsta fundi nýs fræðsluráðs, þann 26. júní 2018, var tekið fyrir bréf frá umboðsmanni barna varðandi mötuneyti Áslandsskóla og það fyrirkomulag að nemendur í mataráskrift matist í öðru rými en nemendur sem koma með nesti að heiman. Fræðslustjóra Hafnarfjarðarbæjar var á fundinum falið að fylgja bréfinu eftir sbr. bókun. Afrit af bréfi var birt […]