Category: News

Artist in Residence of Hafnarfjörður

Hafnarfjarðarbær mun þann 19. apríl, á síðasta vetrardag, útnefna Bæjarlistamann Hafnarfjarðar fyrir árið 2017. Einungis starfandi listamenn með fasta búsetu í Hafnarfirði koma til greina við úthlutun og er miðað við lögheimili síðustu 12 mánuði. Óskað er eftir umsóknum eða rökstuddum ábendingum sem menningar- og ferðamálanefnd mun hafa til hliðsjónar við val á bæjarlistamanni. Umsóknum […]

Tender – Mowing and Cleaning

Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í eftirfarandi verkefni. Sláttur á opnum svæðum Verkið felur í sér slátt á opnum svæðum bæjarins samkvæmt nánari tilvísun verkkaupa, alls 69 hektarar (692.000 m2). Um er að ræða manir með mismiklum halla og slétt svæði. Tilboð verða opnuð hjá umhverfis- og skipulagsþjónustu þann 18. janúar 2017 kl. 10. Hreinsun gróðurbeða […]

Go Hafnarfjörður in Útsvar!

Áfram Hafnarfjörður! Á sjálfan Þrettándann – föstudagskvöldið 6. janúar – etja kappi Hafnarfjörður og Fjallabyggð í útsláttaviðureign í Útsvari. Lið Hafnarfjarðar í ár skipa þau Tómas Geir Howser Harðarson, Sólveig Ólafsdóttir og Guðlaug Kristjánsdóttir. Við sendum hópnum okkar bestu strauma og hlökkum til að sjá þau á skjánum! Allir áhugasamir geta mætt í sjónvarpssal til […]

Jobcentre closes

Atvinnumiðstöð Hafnarfjarðar lokaði um áramótin Atvinnumiðstöðin hóf starfsemi sína á vormánuðum árið 2010 með samningi milli Hafnarfjarðarbæjar og Vinnumálastofnunar.  Miðstöðin hefur sinnt vinnumiðlun, ráðgjöf og annarri þjónustu við atvinnuleitendur í Hafnarfirði. Atvinnumiðstöðin var sett á stofn til að bregðast við þrengingum á vinnumarkaði og afleiðingum efnahagskreppu. Umskipti hafa orðið að þessu leyti síðustu misserin og […]

New arrangement

Tilkynning varðandi nýtt fyrirkomulag á greiðslum húsnæðisbóta (áður húsaleigubætur) Þann 1. janúar 2017 taka gildi lög nr. 75/2016 um húsnæðisbætur og falla þá úr gildi lög nr. 138/1997 um húsaleigubætur. Markmið nýju laganna er að lækka húsnæðiskostnað efnaminni leigjenda með greiðslu húsnæðisbóta vegna leigu á íbúðarhúsnæði og draga úr aðstöðumun á húsnæðismarkaði. Sveitarfélögin hafa hingað […]

New Property Project Manager

Stefán E. Stefánsson hefur verið ráðinn í starf verkefnisstjóra fasteigna hjá umhverfis- og skipulagsþjónustu. Stefán er með MSc í verkfræði. Stefán hefur starfað í Noregi undanfarin misseri hjá vatnsveitunni í Bergen meðal annars sem sviðsstjóri vatnsdreifingar.  Þar á undan var hann bæjarverkfræðingur Seltjarnarnesbæjar og hafði þar með að gera allar framkvæmdir sveitarfélagsins. Stefán mun taka […]

Model nursery children

Duglegir Hafnfirðingar styðja heilsugæslu í Líbanon Börnin í leikskólanum við Norðurberg í Hafnarfirði eru einstaklega hugmyndarík og full af kærleika. Það sönnuðu þau í vikunni þegar þau heimsóttu Rauða krossinn í Hafnarfirði með óvæntan glaðning. Börnin höfðu safnað flöskum til að skila í endurvinnsluna og nam skilagjaldið heilum 25.068 krónum. Það var mat barnanna að […]

Organisational changes

Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013 – 2025 vegna vatnsverndarmarka til samræmis við svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum þann 23.11.2016  tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 vegna vatnsverndarmarka til samræmis við svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins og auglýst skv. 31. grein skipulagslaga nr. 123/2010. Í breytingartillögunni felst að brunnsvæði við Straumsel er fellt […]

Let's clean up after the New Year

Gleðilegt nýtt ár kæru Hafnfirðingar! Mikið rusl fellur til um áramót þegar tonnum af flugeldum er skotið á loft. Nokkuð mikið er um það tómir flugeldakassar, spýtur og prik liggi á víð og dreif um bæinn nú í upphafi árs og biðlum við til íbúa og fyrirtækja á svæðinu að huga að nærumhverfi sínu og […]

Grants for Master's students

Málefni sveitarfélaga – styrkir til meistaranema Samband íslenskra sveitarfélaga veitir nú í annað sinn allt að þremur meistaranemum styrki  til að vinna lokaverkefni á sviði sveitarstjórnarmála sem tengjast stefnumörkun sambandsins 2014-2018. Til úthlutunar er að þessu sinni allt að 750.000 kr. og stefnt er að því að veita þrjá styrki. Rafrænt umsóknarform, verklagsreglur vegna úthlutunar, […]