Fjárhagsáætlun gerir ráð fyrir rúmlega 360 milljóna króna rekstrarafgangi á A og B hluta. Áætlað veltufé frá rekstri samantekið fyrir A og B hluta er 3,3 milljarðar króna sem er um 15% af heildartekjum sveitarfélagsins. Aukið veltufé er grunnforsenda þess að árangur náist í að lækka skuldir bæjarfélagsins. Umbætur í rekstri „Með þessari áætlun […]
Category: News
Íbúð óskast til leigu sem fyrst
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að taka á leigu íbúð í sveitarfélaginu fyrir 6 manna fjölskyldu. Fjölskyldan er á leið til landsins í gegnum móttökuverkefni ráðuneyta og sveitarfélaga sem felur í sér móttöku 55 sýrlenskra flóttamanna. Þar af tekur Hafnarfjarðarbær á móti 17 flóttamönnum og er fjölskyldan hluti af þessum hópi. Íbúðin er ætluð […]
Einhver röskun gæti orðið á skólastarfi
Það er þakkarvert hversu vel það tókst í nótt að sinna þeim rúmlega 180 verkefnum sem upp komu á stórhöfuðborgarsvæðinu vegna óveðurs og annarra láta í veðrinu. Fátt fólk á ferli sem auðveldaði mjög störf viðbragðsaðila og gerði þeim kleift að vinna sín störf hratt og örugglega. Íbúar eiga hrós skilið fyrir að fara […]
Bæjarstjórnarfundur 9. desember
Boðað hefur verið til fundar í Bæjarstjórn Hafnarfjarðar miðvikudaginn 9.desember 2015 kl 16:00. Hér er hægt að nálgast dagskrá bæjarstjórnarfundarins. Bæjarbúar og aðrir áhugasamir eru hvattir til að fylgjast með fundinum hér á vefnum.
Mikilvægar upplýsingar vegna óveðurs
Von er á afar slæmu veðri síðar í dag og hefur óvissustigi verið lýst yfir á landinu öllu. Mikilvægt er að allir íbúar og aðrir sem þurfa ekki að vera úti að nauðsynjalausu fari heim áður en veðrið skellur á og haldi sig heima. Reiknað er með að veðrið skelli á í síðasta lagi kl. […]
Óvissuástand eftir kl. 17 í dag
Það bendir margt til þess að slæm veðurspá fyrir landið allt gangi eftir, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands. Vindaspáin fyrir Reykjavík og nágrenni er rauð í kvöld og eins er gert ráð fyrir töluverðri ofankomu og þá er fljótt að verða ófært. Almannavarnir gáfu út viðvaranir í gær sem enn eru í gildi og full […]
Hönnun og ráðgjöf fyrir Sólvang
Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í hönnun og ráðgjöf vegna húss og lóðar fyrirhugaðs Hjúkrunarheimilis á Sólvangi. Stærð byggingar er áætluð 3.900 fermetrar og lóð um 5.000 fermetrar, einnig eiga bjóðendur að gefa verð í hönnun vegna breytinga á eldra húsnæði Sólvangs. Útboðsgögn verða afhent hjá Þjónustuveri Hafnarfjarðarbæjar, Strandgötu 6, Hafnarfirði. Tilboðum skal skila á Norðurhellu 2, […]
Nýjar leiguíbúðir fyrir fatlað fólk
Landssamtökin Þroskahjálp og Hafnarfjarðarbær skrifuðu í dag undir samkomulag vegna lóðar að Öldugötu 41 í Hafnarfirði. Til stendur að húsbyggingarsjóður Þroskahjálpar reisi þar leiguíbúðir ætlaðar sex fötluðum einstaklingum. Áætlað er að húsið verði tilbúið til notkunar 2018. Í dag skrifuðu Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri, Sveinn E. Sigurðsson formaður Húsbyggingarsjóðs og Árni Múli Jónasson, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar […]
Fræðst um flóttafólk
Starfsfólk Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar átti fróðlegan samráðsfund í dag með Dr. Dubus, Nicole Mignon, bandarískum sérfræðingi í málefnum flóttamanna og háskólakennara. Hún er hér á landi á vegum velferðarráðuneytisins og er til ráðgjafar við stjórnvöld og starfsfólk sveitarfélaga um móttöku flóttamanna og heimsótti Hafnarfjörð í dag. Á fundinum með Nicole voru rædd málefni flóttamanna og þá […]
Árdís ráðin samskiptastjóri
Árdís er með meistarapróf í stefnumótun, stjórnun og leiðtogafræðum frá Viðskiptaskólanum í Árósum, grunnpróf í alþjóðamarkaðsfræði frá Háskólanum í Reykjavík auk þess að vera með alþjóðlegt IATA/UFTA próf frá Ferðamálaskóla Íslands. Árdís býr að góðri reynslu á fjölbreyttu sviði og hefur m.a. starfað sem framkvæmdastjóri í stækkandi sprotafyrirtæki, markaðs- og kynningarstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands sem styður […]