Covid-19 – Easing of restrictions on school activities from 24 February
Generally, the maximum permitted number of students will be 150 in each room, and mixing between bubbles will be permitted at all school levels.
Almennt verður heimilaður hámarksfjöldi nemenda 150 í hverju rými og blöndun milli sóttvarnahólfa heimil á öllum skólastigum, líka í háskólum. Regla um nándarmörk verður 1 metri í stað tveggja og gildir það jafnt milli nemenda og starfsfólks. Aðeins þarf að bera grímur ef ekki er unnt að virða 1 metra regluna. Á öllum skólastigum öðrum en á háskólastigi verður foreldrum, aðstandendum og öðrum utanaðkomandi heimilt að koma inn í skólabyggingar, að uppfylltum reglum um sóttvarnir. Þetta eru meginbreytingarnar á takmörkun skólastarfs sem heilbrigðisráðherra hefur ákveðið, í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis og að höfðu samráði við mennta- og menningarmálaráðuneytið. Gildistími nýrrar reglugerðar um takmarkanir á skólastarfi er til og með 30. apríl nk.
Sjá tilkynningu á vef Mennta- og menningarmálaráðuneytisins
Líkt og verið hefur gilda engar fjöldatakmarkanir um nemendur í leikskólum, þeir eru undanskildir reglum um fjarlægðarmörk og reglum um grímunotkun. Í grunnskólum verður heimilt að hafa 150 nemendur í hverju rými en líkt og áður eru nemendur í 1. til 10. bekk undanskildir reglum um fjarlægðarmörk og reglum um grímunotkun.
Reglur tónlistarskóla munu taka mið af sambærilegum skólastigum.
Viðburðir tengdir félagsstarfi í leik- grunn- og framhaldsskólum og í tónlistarskólum verða heimilir í skólabyggingum með þeim fjölda og nálægðartakmörkunum sem gilda á viðkomandi skólastigi.
Viðburðir þar sem gestir sitja:
Heimilt verður að halda viðburði í skólum í samræmi við almennar reglur um samkomutakmarkanir.
Helstu breytingar í nýrri reglugerð:
Pre-schools
- Leikskólum er heimilt, samkvæmt nánari ákvörðun sveitarfélaga, að halda uppi skólastarfi í skólabyggingum með 1 metra nálægðartakmörkum milli starfsfólks. Sé það ekki unnt ber að nota andlitsgrímur.
- Ekki skulu vera fleiri en 50 fullorðnir í hverju rými.
- Foreldrar, aðstandendur og aðrir skulu sýna aðgát þegar þeir koma inn í skólabyggingu og gæta að sóttvörnum. Þeir skulu gæta að minnst 1 metra nálægðartakmörkun jafnt milli sín og gagnvart starfsfólki.
- Viðburðir tengdir starfi eða félagslífi leikskóla, svo sem leiksýningar og tónleikar, eru heimilir í skólabyggingum með áðurnefndum fjölda- og nálægðartakmörkunum. Fari hámarksfjöldi fullorðinna yfir 50 gilda reglur um samkomutakmarkanir samkvæmt reglugerð um takmörkun á samkomum.
Primary schools
- Grunnskólum er heimilt, samkvæmt nánari ákvörðun sveitarfélaga, að halda uppi skólastarfi í skólabyggingum með 1 metra nálægðartakmörkum milli starfsfólks. Sé það ekki unnt ber að nota andlitsgrímur.
- Ekki skulu vera fleiri en 50 starfsmenn í hverju rými. Þetta á einnig við um frístundaheimili, skipulagt æskulýðs- og tómstundastarf, sem og starfsemi í félagsmiðstöðvum.
- Nemendur eru undanþegnir nálægðartakmörkunum og grímuskyldu. Ekki skulu vera fleiri en 150 nemendur í hverju rými innan dyra.
- Foreldrar, aðstandendur og aðrir utanaðkomandi skulu sýna aðgát þegar þeir koma inn í skólabyggingu og gæta að sóttvörnum. Þeir skulu gæta að minnst 1 metra nálægðartakmörkun jafnt milli sín og gagnvart starfsfólki.
- Viðburðir tengdir starfi eða félagslífi grunnskóla, svo sem fyrirlestrar, upplestrarkeppni o.fl. eru heimilir í skólabyggingum með áðurnefndum fjölda- og nálægðartakmörkunum.
- Fari hámarksfjöldi fullorðinna yfir 50 gilda reglur um samkomutakmarkanir samkvæmt reglugerð um takmörkun á samkomum.
Secondary schools
Skólastarf á framhaldsskólastigi, í lýðskólum, ungmennahúsum og framhaldsfræðslu er heimilt að því tilskildu að nemendur og starfsfólk geti haft minnst 1 metra fjarlægð sín á milli og fjöldi nemenda og starfsmanna fari aldrei yfir 150 í hverju rými. Sé ekki unnt að halda 1 metra fjarlægð skulu nemendur og starfsmenn nota andlitsgrímur.
- Viðburðir tengdir starfi eða félagslífi framhaldsskóla, svo sem fyrirlestrar, ræðukeppnir o.fl., eru heimilir í skólabyggingum með áðurnefndum fjölda- og nálægðartakmörkunum. Fari hámarksfjöldi yfir 150 gilda reglur um samkomutakmarkanir samkvæmt reglugerð um takmörkun á samkomum.
Universities
- Í öllum byggingum háskóla er skólastarf heimilt að því tilskildu að nemendur og starfsfólk geti haft minnst 1 metra fjarlægð sín á milli og fjöldi nemenda og starfsmanna í hverju kennslu- eða lesrými fari ekki yfir 150. Sé ekki unnt að halda 1 metra fjarlægð skulu nemendur og starfsmenn nota andlitsgrímur.
- Ekki skulu vera fleiri en 50 starfsmenn í hverju rými.
- Blöndun nemenda og kennara milli hópa er heimil.
- Viðburðir tengdir starfi eða félagslífi háskóla eru heimilir í skólabyggingum. Fari hámarksfjöldi fullorðinna yfir 50 gilda reglur um samkomutakmarkanir samkvæmt reglugerð um takmörkun á samkomum.