Construction to begin on new Kaldárselsveg

News

Emphasis is placed on the safety of pedestrians and cyclists with underpasses and paths, and therefore access to the uplands of Hafnarfjörður will improve.

Á fundi Umhverfis- og framkvæmdaráðs þann 18. Apríl var samþykkt heimild til útboðs á endurnýjun á Kaldárselsvegi að hluta. Framkvæmdin felur í sér endurgerð á veginum sem og tengingum Brekkuáss og Klettahlíðar þar við, stíga og hljóðvarnir. Jafnframt er verð að gera tvö ný hringtorg.  Framkvæmdin mun hefjast núna á vormánuðum og standa fram eftir vetri og er í samræmi við samþykkt deiliskipulag. 

Verktími er áætlaður frá 1. Júní og stefnt er að því að malbikun verði lokið 30. September og verklok í lok árs.  Íbúar Áslands 3 munu finna fyrir tímabundnum óþægindum á verktíma vegna hjáleiða en reynt er eftir fremsta megni að sá tími verði sem stystur. 

Áhersla er lögð á öryggi gangandi og hjólandi með undirgöngum og stígum og því mun aðgengi að upplandi Hafnarfjarðar batna. Þegar framkvæmd við endurgerð Kaldárselsvegar að Hlíðarþúfum lýkur verður hægt að ganga eða hjóla á öruggum stíg frá miðbænum að afleggjaranum við Hvaleyrarvatn og fyrirhugað er að halda áfram með þá framkvæmd alla leið upp í Kaldársel.

Suggestion portal