Happy summer!
The staff of Hafnarfjörður wish the residents and friends of Hafnarfjörður a happy summer, and thank them for the winter.
Starfsfólk Hafnarfjarðarbæjar óskar íbúum og vinum Hafnarfjarðar gleðilegs sumars með þökk fyrir ótrúlegan og öðruvísi vetur!
Í ár fögnum við sumri með breyttu sniði. Við höfum tekið saman heilt stafróf af hugmyndum að einhverju spennandi og skemmtilegu fyrir alla fjölskylduna til að framkvæma heima við eða í næsta nágrenni á næstu vikum. Bæði nú á tímum samkomubanns og sóttkvíar þegar mikilvægt er að hlúa vel að sjálfum sér og öðrum og eins áfram í sumar.
Skátafélagið Hraunbúar hefur í mörg ár séð um skrúðgöngu og fjölskyldudagskrá og frjálsíþróttadeild FH séð um Víðavangshlaup í Hafnarfirði á Sumardaginn fyrsta en af slíkum hátíðarhöldum getur því miður ekki orðið að þessi sinni. Skátarnir takast á við ástandið með glaðværð og forvitni að vopni og hvetja bæjarbúa til að leysa skemmtileg skátaverkefni sem þeir kalla #stuðkví sem hægt er að vinna heima eða úti í garði meðan þetta ástand varir.