Primary School Festival 2016
The youth clubs and primary schools of Hafnarfjörður have organised the Primary School Festival for years, and the festival has been a credit to the young people and their projects.
Miðvikudaginn 3. febrúar fer fram Grunnskólahátíðin í Hafnarfirði. Félagsmiðstöðvarnar og grunnskólarnir í Hafnarfirði hafa staðið að þessu verkefni í áraraðir og hefur hátíðin verið unglingunum og verkefnum þeirra til mikils sóma.
Um daginn verða leiksýningar í Gaflaraleikhúsinu kl. 13:00 og 15:00 þar sem nemendur úr skólum bæjarins sýna afrakstur allskonar listtengdrar vinnu.
- Leiksýning kl. 13:00 er fyrir nemendur úr Áslandsskóla, Víðistaðaskóla og Hraunvallaskóla
- Leiksýning kl. 15:00 er fyrir nemendur úr Setbergsskóla, Lækjarskóla, Öldutúnsskóla og Hvaleyrarskóla
Um kvöldið mun dansleikur hefjast kl 19:00 í Íþróttahúsinu Strandgötu og ljúka kl 22:30. Þar munu plötusnúðar úr Öldunni og Hrauninu stíga á stokk ásamt sigurvegurum úr söngkeppni félagsmiðstöðvanna sem koma frá Mosanum og Hrauninu. Einnig munu Friðrik Dór, Jón Jónsson, Emmsjé Gauti og plötusnúðarnir í Basic House Effect koma fram.
Everyone will be driven home after the dance.