First Icelandic municipality to receive equal pay certification
Hafnarfjarðarbær er fyrsta sveitarfélagið á Íslandi til að fá vottað jafnlaunamerki frá velferðarráðuneytinu. Markmiðið með innleiðingunni er að koma á og viðhalda launajafnrétti hjá Hafnarfjarðarbæ og uppfylla skyldur atvinnurekenda um að tryggja jafnan rétt kvenna og karla, greiða þeim jöfn laun og tryggja að þau njóti sömu kjara fyrir sömu eða jafnverðmæt störf.

Með vottun frá úttektaraðila, BSI á Íslandi, sem og jafnlaunamerkinu frá velferðarráðuneytinu, getur Hafnarfjarðarbær sannarlega staðfest að hann uppfyllir þær kröfur sem lagðar eru fram samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST 85:2012.
Þar má telja:
- Ensure that all decisions regarding pay and conditions are documented, justified and traceable.
- Procedures, job descriptions and instructions are in place.
- Legal and other requirements are met
- Preventative measures and action plans are in place.
- The areas of responsibility and roles of key personnel are defined.
- That pay decisions reflect that the same pay is paid for comparable work.
Jafnlaunakerfi veitir svo stjórnendum skýrari sýn á launagreiningar, úrbótaverkefni, eftirfylgni með aðgerðum og staðfestingu þess að settri jafnréttisstefnu sé fylgt eftir.
„Við erum gríðarlega stolt af því að vera fyrsta sveitarfélag landsins að fá vottað jafnlaunakerfi. Það var heilmikið átak að fara í gegnum þessa vinnu og við erum stolt af og þakklát starfsfólki Ráðhússins fyrir hvað vinnan hefur gengið vel“ sagði Guðlaug Kristjánsdóttir, forseti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar í tilefni innleiðingarinnar. „Fyrir utan hið augljósa, að vottunin tryggir jöfn laun óháð kyni, þá er hún um leið verkfæri til að viðhalda góðum aga við þessar ákvarðanir“
Starfshópurinn sem stýrði innleiðingunni var skipaður af Andra Ómarssyni verkefnastjóra, Berglindi Guðrúnu Bergþórsdóttur mannauðsstjóra, Haraldi Eggertssyni verkefnastjóra og Lúvísu Sigurðardóttur gæðastjóra.
Nánar um jafnlaunavottun BSI
http://bsiaislandi.is/namskeid/jafnlaunavottun/innleiding-jafnlaunakerfis/