The VITINN podcast – a new episode is now live.
Í þessum þætti Vitans er rætt við Önnu Báru Gunnarsdóttir, deildarstjóra þjónustuvers Hafnarfjarðarbæjar. Anna Bára er lykilmanneskja í þjónustu bæjarins og fáir sem hafa betri sýn á þjónustu við íbúa og gesti. Hún veitir okkur innsýn í dagleg verkefni og hvernig þjónusta bæjarins hefur þróast sl. 15 ár og skemmtilegar sögur af samskiptum við íbúa.
Nýr þáttur Vitans er kominn í loftið. Í þessum þætti spjallar Sigurjón Ólafsson, sviðsstjóri þjónustu- og þróunarsviðs Hafnarfjarðarbæjar, við Önnu Báru Gunnarsdóttur deildarstjóra þjónustuvers Hafnarfjarðarbæjar. Anna Bára og hennar starfsfólk standa í framlínusveit Hafnarfjarðarbæjar og þjónusta gesti af öllum þjóðernum í mismunandi erindagjörðum alla virka daga og það í gegnum margar mismunandi þjónustuleiðir. Góð þjónusta við íbúa og aðra er Önnu Báru og hennar teymi mjög hugleikin.
Interviews with interesting individuals who work for the municipality.
In Vitanum, we chat with interesting individuals who work for the benefit of the town. It covers the council's services, interesting development projects and topics from a wide range of areas. The podcast provides a more in-depth look at specific projects, services and issues that are currently a hot topic. All episodes of Vitan can be accessed HERE, as well as on podcast platforms such as Spotify, Simplecast and Podcast Addict. Work is underway to make Vitan available on more platforms.
Þáttur #6: Anna Bára Gunnarsdóttir, deildarstjóri þjónustuvers Hafnarfjarðarbæjar
Hér er rætt við Önnu Báru Gunnarsdóttir, deildarstjóra þjónustuvers Hafnarfjarðarbæjar. Anna Bára er lykilmanneskja í þjónustu bæjarins og fáir sem hafa betri sýn á þjónustu við íbúa og gesti bæjarins. Hún veitir okkur innsýn í dagleg verkefni og hvernig þjónusta bæjarins hefur þróast sl. 15 ár og skemmtilegar sögur af samskiptum við íbúa. Anna Bára er búsett í Hafnarfirði en ólst upp í Keflavík og segir okkur frá uppvexti sínum þar, áhugamálum og fjölskyldu. Hún er hlaupakona, prjónakona og mikil fjölskyldumanneskja sem sinnir barnabörnum og vinnur með Oddfellow í sínum frítíma.
Upptökudagur: 4. október 2019