Who has the best-decorated house in Hafnarfjörður?
Við hvetjum Hafnfirðinga og aðra áhugasama til að setja upp stóru jólagleraugun og senda okkur ábendingu um það hús í Hafnarfirði sem þykir bera af í jólaskreytingunum þetta árið. Verðlaun verða veitt fyrir best skreytta húsið og fer verðlaunaafhending fram sunnudaginn 23. desember í Jólaþorpinu á Thorsplani. HS veitur veita verðlaunin og er óhætt að segja að þau muni koma sér vel fyrir þá sem lýsa vel upp hjá sér fyrir jólin!
Who has the best-decorated house in Hafnarfjörður?
Þú? Nágranni þinn? Vinur þinn í vesturbænum? Við hvetjum Hafnfirðinga og alla aðra áhugasama til að setja upp stóru jólagleraugun og senda okkur ábendingu um það hús í Hafnarfirði sem þykir bera af í jólaskreytingunum þetta árið.
Verðlaun verða veitt fyrir best skreytta húsið og fer verðlaunaafhending fram sunnudaginn 23. desember í Jólaþorpinu á Thorsplani. Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðarbæjar mun sjá um val á jólahúsinu 2018. HS veitur veita verðlaunin og er óhætt að segja að þau muni koma sér vel fyrir þá sem lýsa vel upp hjá sér fyrir jólin!
Sendu okkur ábendingu á: jolathorp@hafnarfjordur.is
Ljósmynd: Guðmundur Fylkisson