Come out and play during the winter holidays!

News

Vetrarfrí er í grunnskólum og Tónlistarskóla Hafnarfjarðar mánudaginn 23. október og þriðjudaginn 24. október. Af því tilefni býður Heilsubærinn Hafnarfjörður börnum og fjölskyldum þeirra að taka þátt í skipulagðri og skemmtilegri dagskrá, skemmtilegu bingói eða einfaldlega nýta þau tækifæri og möguleika sem leynast út um allt í Hafnarfirði til heilsueflingar og fallegra samverustunda fjölskyldunnar.

Vetrarfrí í grunnskólum Hafnarfjarðar 23. og 24. október

Vetrarfrí er í grunnskólum og Tónlistarskóla Hafnarfjarðar mánudaginn 23. október og þriðjudaginn 24. október. Af því tilefni býður Heilsubærinn Hafnarfjörður börnum og fjölskyldum þeirra að taka þátt í skipulagðri og skemmtilegri dagskrá, skemmtilegu bingói eða einfaldlega nýta þau tækifæri og möguleika sem leynast út um allt í Hafnarfirði til heilsueflingar og fallegra samverustunda fjölskyldunnar. Á vef Hafnarfjarðarbæjar er hægt að nálgast fullt af hugmyndum af áhugaverðum stöðum að heimsækja, leik- og boltavellir eru víða og fjölmargar göngu- og hjólaleiðir liggja um Hafnarfjörð. Frítt verður í sund í öllum laugum bæjarins báða dagana.

Mánudagur 23. október

  • FRÍTT Í SUND frá kl. 6:30-22 í Ásvallalaug og Suðurbæjarlaug og í Sundhöll til kl. 21
  • Byggðasafn Hafnarfjarðar: Ratleikur fyrir börnin og áhugaverðar sýningar. Opið kl. 11-15
  • Bókasafn Hafnarfjarðar: Kósíbíó í fjölnotasal frá kl.12-14. Teppi, grjónapokar, koddar og kósí! Komdu í bíó á Bókasafni Hafnarfjarðar! Smiðja í barnadeild – gerum okkar eigin bókakápur! frá kl. 13 – 15. Viltu skrifa bók? Eða kannski betrumbæta bók? Við búum til bókarkápur saman á barnadeildinni! Harry Potter ratleikur í gangi um bókasafnið allan daginn.
  • Hafnarborg: Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir myndlistarkona verður með listasmiðju í Apótekinu kl. 13-15. Smiðjan tengist sýningunni GILDI þar sem sýnd verða listaverk út safneign Hafnarborgar.

Þriðjudagur 24. október

  • Dagur Kvennaverkfalls 2023. Skert þjónusta verður á starfsstöðvum Hafnarfjarðarbæjar s.s. í sundlaugum og söfnum.

Taktu í spaðann í vetrarfríinu!

Hafnarfjörður Badminton Club býður börnum, unglingum og foreldrum sem eru í bænum í vetrarfríinu að koma í badminton og borðtennis í íþróttahúsið við Strandgötu þessa daga. Opnir tímar fyrir skráða iðkendur hjá BH og foreldra þeirra verða mánudaginn 23.október og þriðjudaginn 24.október kl. 10-12. Einnig verða hefðbundnir æfingatímar samkvæmt æfingatöflu seinnipart dags þessa báða daga fyrir skráða iðkendur. Opnir tímar fyrir börn og foreldra sem ekki eru skráð í félagið verða mánudaginn 23.október og þriðjudaginn 24.október kl.13-15. Mikilvægt er að skrá sig í þessa tíma þar sem pláss er takmarkað en aðgangur er ókeypis. Þjálfarar BH verða á staðnum báða dagana og taka vel á móti öllum. Spaðar og kúlur verða til láns fyrir þau sem þurfa.

Registration

In addition, the Healthy Town of Hafnarfjörður has compiled A whole alphabet of ideas for lots of exciting and fun things. that people can take up at home or in their local area. There you can find plenty of ideas for something new and different to do on your own or with the family. Here on the website, you can also find a list of unique Natural phenomena and interesting places and a number of Walking and cycling route which run through Hafnarfjörður.

The health town of Hafnarfjörður offers children and their families to take part Fun bingo in the winter holiday, where you can find great ideas for fun and varied activities all over Hafnarfjörður for the whole family.

The health town of Hafnarfjörður wishes its residents and friends a happy winter holiday!

Suggestion portal