Park legally – it matters
Bílastæðasjóður Hafnarfjarðar er tekinn til starfa. Um miðjan júní hófst álagning stöðugjalda á ökutæki sem lagt er ólöglega í bænum. Frá apríl fram í miðjan júní fengu þeir ökumenn sem lögðu ólöglega í einungis aðvörunarmiða á bíla sína til að vekja athygli á breyttu eftirliti með stöðubrotum.
Álagning stöðubrotsgjalda er hafin
Bílastæðasjóður Hafnarfjarðar er tekinn til starfa. Um miðjan júní hófst álagning stöðugjalda á ökutæki sem lagt er ólöglega í bænum. Frá apríl fram í miðjan júní fengu þeir ökumenn sem lögðu ólöglega í einungis aðvörunarmiða á bíla sína til að vekja athygli á breyttu eftirliti með stöðubrotum.
Ólögleg lagning getur skapað hættu
Bílastæðasjóður hefur það hlutverk að tryggja að farið sé eftir settum umferðarlögum auk lögreglusamþykktar og nær umráðasvæði sjóðsins til allra hverfa í Hafnarfirði. Markmiðið er ekki að sekta sem flesta heldur að gera umferð um bæinn öruggari og aðgengilegri fyrir okkur öll – gangandi, hjólandi, akandi og ekki síst fyrir viðbragðsaðila. Sérstök áhersla er lögð á svæði þar sem ólögleg lagning getur skapað hættu eða hindrað aðgengi, svo sem við gangstéttir, gönguleiðir, gangbrautir, stæði fyrir fatlað fólk og biðstöðvar. Þetta nær líka til bifreiða sem leggja á móti akstursstefnu. Slík brot er algengasta stöðubrotið í Hafnarfirði. Umferðarlögin eru skýr hvað slíkt stöðubrot varðar en í 28. gr. laganna stendur: „Á vegi má einungis stöðva ökutæki eða leggja því hægra megin. Þar sem einstefnuakstur er má þó setja aðrar reglur, sbr. 1. mgr. 84. gr. Utan þéttbýlis má einungis stöðva eða leggja ökutæki hægra megin miðað við akstursstefnu“ . Með samstilltu átaki er hægt að skapa öruggara og aðgengilegra umhverfi fyrir alla.
Viltu andmæla álagningu?
Teljir þú að stöðubrotsgjald hafi verið ranglega lagt á þarf að senda andmæli í gegnum andmælagátt á upplýsingasíðu Bílastæðasjóðs Hafnarfjarðar. Þannig tryggjum við að erindið berist á réttan stað og fái rétta meðferð frá upphafi.
Við hvetjum alla ökumenn til að leggja löglega. Það er einföld leið til að stuðla að öruggari og betri umferð fyrir alla í Hafnarfirði.