Maximus concerts in Hafnarfjörður and Harpa
The Hafnarfjörður Music School Symphony Orchestra, together with the Garðabær Music School String Orchestra, will hold a series of three concerts of the musical adventure about the musical mouse, Maximus Musicaeus, next weekend.
Sinfóníuhljómsveit Tónlistarskóla Hafnarfjarðar ásamt Strengjasveit Tónlistarskóla Garðabæjar mun halda þrenna tónleika með tónlistarævintýrinu um tónlistarmúsina Maxímús Músíkús í Hásölum Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og í Hörpu um næstu helgi. Flutt verður sagan “Maxímús Músíkús trítlar í tónlistarskólann” með sögumanni, myndum og tónlistaratriðum með um 50 hljóðfæraleikurum en á efnisskránni verða hljómsveitarverkin Í höll Dofrakonungs eftir Grieg, þáttur úr Leikfangasinfóníunni og að sjálfsögðu Lagið hans Maxa en sjálfur Maxímús Músíkús mun koma í heimsókn og dansa við lagið sitt.
Fimm einleiksatriði eru einnig á efnisskránni þar sem ungir einleikarar á blásturs- og strengjahljóðfæri koma fram með hljómsveitinni og flytja m.a. þjóðlögin Á Sprengisandi og Krummavísur auk verka eftir Dvorák og Gossec. Stjórnandi hljómsveitarinnar er Ármann Helgason sem hefur fengið dyggan stuðning og aðstoð frá strengjakennurum úr Hafnarfirði og Garðabæ við verkefnið.

Það er því mikil veisla framundan enda fagnar skólinn 70 ára afmæli um þessar mundir en um 400 grunnskólabörnum í Hafnarfirði er boðið á tvenna tónleika í Hásölum í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar. Tónleikarnir í Hörpu verða svo á ókeypis Fjölskyldustund Hörpu í Kaldalónssal sunnudaginn 27. október kl 11.30 og eru allir velkomnir þangað á meðan húsrúm leyfir.