Með menntasjóði verða draumar að veruleika

News

Menntasjóður Hafnarfjarðar var stofnaður síðastliðið haust og kynntur fyrir kennurum og starfsfólki í leik- og grunnskólum Hafnarfjarðar á sameiginlegum starfsdegi í nóvember. 27 umsóknir bárust og 16 af þeim fengu styrk að þessu sinni, samtals 11 milljónir króna.  Fjögur leiðarljós Menntastefnu Hafnarfjarðar frá árinu 2022 eru sköpun, fjölbreytileiki, vellíðan og samvinna og á hverju ári er ákveðið hvaða leiðarljós er farið í úthlutun úr menntasjóði. Í ár var það samvinna.

Menntastefnan eru æðar menntakerfisins 

Menntasjóður Hafnarfjarðar var stofnaður síðastliðið haust og kynntur fyrir kennurum og starfsfólki í leik- og grunnskólum Hafnarfjarðar á sameiginlegum starfsdegi í nóvember. 27 umsóknir bárust og 16 af þeim fengu styrk að þessu sinni, samtals 11 milljónir króna. „Við höfum verið að innleiða menntastefnuna hjá bænum og koma henni inn í æðakerfið á menntakerfinu. Það vantaði smá “boozt” og þetta var leið sem við ákváðum að fara líkt og fleiri sveitarfélög,“ segir María.

Menntastefna Hafnarfjarðar var kynnt til sögunnar 2022 eftir mikla vinnu og óhætt að segja að stefnan sé er mótuð af metnaði, samvinnu og skýrri sýn til framtíðar. Í sameiningu lögðu nemendur, kennarar, starfsfólk og foreldrar línurnar. Niðurstaðan varð skýr vegvísir þar sem þroski, vellíðan og árangur í námi eru í forgrunni – grunnur að öflugu og lifandi lærdómssamfélagi í Hafnarfirði. Fjögur leiðarljós menntastefnunnar eru sköpun, fjölbreytileiki, vellíðan og samvinna og á hverju ári er ákveðið hvaða leiðarljós er farið í úthlutun úr menntasjóði. Í ár var það samvinna. Tilgangur styrkveitinganna úr Menntasjóði Hafnarfjarðar er að stuðla að þróunar- og nýsköpunarstarfi í skóla- og frístundastarfi bæjarins. Styrkirnir eru ætlaðir til verkefna sem efla gæði og fagmennsku í starfi með börnum, stuðla að auknu samstarfi og styðja við rannsóknir. Verkefnin eiga að styðja við eða efla fagstarf með áherslu á þátttöku barna og ungmenna á starfsstöðum sviðsins.

Meiri möguleikar að sjá drauma verða að veruleika 

María hefur starfað hjá Hafnarfjarðarbæ í fimm ár, þar af eitt ár í þessu starfi – sem er hlutastarf á móti starfi innritunarfulltrúa. Ég er leikskólakennari í grunninn, hef starfað á leikskóla og þekki það umhverfi vel. Menntasjóðurinn er mjög spennandi og skemmtilegt að sjá hvað þetta eru fjölbreyttar hugmyndir. Það var einmitt það sem við vonuðumst eftir; að kynnast því hvað kennarar og annað starfsfólk í skólum er að hugsa. Hvað þau langar að gera og það hefur verið gefandi á sjá hversu mörg eru að dýpka sig í starfi.“  Einn styrkhafi hafi haft það á orði að þetta opni svo mikið á möguleika til að efla það sem viðkomandi hefur lengi langað að gera. Mörg hafa haft hugmyndir í mörg ár og drifu í að láta verða af því í ár, sem er mjög ánægjulegt. Við reiknum svo með enn fleiri umsóknum á næsta ári. Þetta er tilvalið tækifæri fyrir þennan hóp til að gera eitthvað nýtt og skapandi, segir María að lokum. 

Á næstu vikum munu viðtöl við styrkhafa úr Menntasjóði Hafnarfjarðar vera birt á miðlum Hafnarfjarðarbæjar. Þannig gefst íbúum og öðrum áhugasömum tækifæri til að fá dýpri innsýn í frábær verkefni og skapandi skóla- og frístundastarf.  Vegferðin hefst með Maríu Baldursdóttur, verkefnastjóri menntamála og innritunar í leikskóla hjá Hafnarfjarðarbæ.

Suggestion portal