The new school year starts after the weekend.

News

Nýtt skólaár innan grunnskóla Hafnarfjarðar hefst eftir helgi og munu rétt rúmlega 4.000 börn og ungmenni setjast á skólabekk þetta haustið. Þar af eru tæplega 400 börn að hefja sína grunnskólagöngu. Skólaárið hefst með skólasetningu miðvikudaginn 23. ágúst.

Skólasetning í grunnskólum Hafnarfjarðar verður miðvikudaginn 23. ágúst og hefst formlegt skólastarf nemenda samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 23. ágúst. Rúmlega 4.000 börn og ungmenni setjast á skólabekk þetta haustið í grunnskólum Hafnarfjarðar og þar af eru tæplega 400 börn að hefja sína grunnskólagöngu. Nánari upplýsingar um stundaskrá og tímasetningar skólasetninga í hverjum skóla má finna á vef viðkomandi skóla. Í Hafnarfirði eru 11 grunnskólar, 9 reknir af bænum en Barnaskóli Hjallastefnunnar og NÚ eru sjálfstætt starfandi.

Porridge, fruit and free school supplies

Að byrja í grunnskóla er stórt skref í lífi hvers barns og við slík tímamót er samstarf heimilis og skóla afar mikilvægt. Hagstæð uppeldisskilyrði og gott samstarf er forsenda þess að börn og ungmenni dafni vel í skólanum og þekki styrkleika sína. Frá haustinu 2019 hafa allir nemendur getað fengið hafragraut að morgni í skólanum sér að kostnaðarlausu. Auk þess er boðið upp á ávexti í áskrift í morgunhressingu, hádegisverði og síðdegishressingu, hvort heldur sem barn er í frístundaheimili (síðdegishressing er innifalin í gjaldi frístundaheimilis) eða ekki (og er þá greitt sérstaklega). School Food Ltd Manage the catering service in all the town's primary schools, except for Áslandsskóli, and should contact them regarding meal subscriptions.School food.is) The City of Hafnarfjörður also provides primary school pupils with educational materials free of charge. Schools purchase the stationery that pupils need for their schoolwork. Pupils are thus provided with exercise books, pens, folders and other such items as they need for their daily schoolwork, in addition to textbooks.

Skólasetning að hausti – uppskeruhátíð að vori

Nú þegar haustið nálgast er skemmtilegt að rifja upp í máli og myndum eina af þeim fjölmörgu hátíðum sem haldnar voru í einstaka bæjarhlutum og skólahverfum síðastliðið vor. Skólasamfélagið við Skarðshlíðarskóla stóð til að mynda fyrir fjölmennri og glæsilegri vorhátíð við skólann í byrjun júní og var það í annað sinn í sögu skólans sem er nýjasti grunnskólinn í Hafnarfirði. Skipuleggjendur hátíðar sáu til þess að fjölbreytt afþreying var í boði og þótti ungum sem öldnum t.d. áhugavert að kynna sér þau tæki og tól sem finna má í slökkviliðsbílum og sjúkrabílum. Hoppukastalar, matarvagnar, klifurveggur, veltibíll og sirkuslistakonan Húlladúlla. Veðrið lék við mannskapinn og hátíðin afar vel sótt og vel heppnuð.  Tilkynning um hátíðina á vef skólans

Suggestion portal