Beauty Pageant 2022 – point out the one you think is the best

News

The City of Hafnarfjörður is seeking nominations from residents and interested parties for awards for beautiful and well-maintained gardens, streets, open spaces or institutional grounds in Hafnarfjörður. The selection for the awards is based in part on submitted nominations, and residents, visitors, staff of businesses and organisations in Hafnarfjörður, and other interested parties are encouraged to nominate the person they consider to be the best.

Hafnarfjarðarbær leitar til íbúa og áhugasamra eftir tilnefningum til viðurkenninga fyrir fallega og vel hirta garða, falleg tré,  götur og opin svæði eða stofnanalóðir í Hafnarfirði. Val til viðurkenninga byggir meðal annars á innsendum tillögum og eru íbúar, gestir, starfsfólk fyrirtækja og stofnana í Hafnarfirði og aðrir áhugasamir hvattir til að benda á þann sem bestur þykir. 

Frestur til tilnefninga er til og með 21. ágúst á netfangið: berglindg@hafnarfjordur.is or through The council's feedback portal with a picture. 

5O5A0091Þessi hópur fékk viðurkenningar fyrir snyrtileika í lok sumars 2021. Krýsuvíkurkirkja fékk heiðursverðlaun Snyrtileikans.

Fólk og fyrirtæki til fyrirmyndar – viðurkenningar veittar í lok sumars 

Með viðurkenningunum er verið að skapa ákveðna fyrirmynd í snyrtileika og frágangi lóða og garða, jafnt á íbúðarsvæðum sem atvinnusvæðum. Með framkvæmdinni vill Hafnarfjarðarbær vekja áhuga almennings á fallegum trjám, fegrun umhverfis innan bæjarins og beina athyglinni að þeim sem til fyrirmyndar teljast á þessu sviði í Hafnarfirði og ættu þannig að vera öðrum hvatning til framkvæmda. Mikilvægt er að íbúar sem og fyrirtæki séu hvött áfram og verðlaunuð fyrir góða umgengni og snyrtilegt umhverfi. Heiðursverðlaun eru svo veitt þeim fyrirtækjum og stofnunum sem hafa stóru hlutverki að gegna í hafnfirsku samfélagi. Karmelklaustrið, Krýsuvíkurkirkja, Kirkjugarðar Hafnarfjarðar, Skógræktarfélag Hafnarfjarðar og Golfklúbburinn Keilir eru dæmi um stofnanir sem fengið hafa heiðursverðlaun Snyrtileikans hin síðustu ár. 

Viðurkenningar veittar í lok sumars

Viðurkenningar ársins 2022 verða veittar við hátíðlega athöfn í Gróðrarstöðinni Þöll við Kaldárselsveg í lok sumars. Frestur til að skila inn tilnefningum er til og með 21. ágúst 2022. Tilnefningar má senda á netfangið: berglindg@hafnarfjordur.is or through The council's feedback portal with a picture.

Þessi hafa fengið viðurkenningar fyrir snyrtileika og fegrun umhverfisins frá árinu 2016:

Suggestion portal