Tablet implementation at Áslandsskóli
Since around the turn of the year, work has been systematically underway to prepare for the introduction of tablets at Ásland School.
Frá því um síðustu áramót hefur markvisst verið unnið að undirbúning spjaldtölvuvæðingar í Áslandsskóla. Í morgun voru fyrstu tækin afhent þegar nemendur í 5.bekk skólans fengu sín tæki afhent. Krakkarnir voru spenntir fyrir því að fá tækin í hendurnar og ekki síður kennararnir sem hafa verið að undirbúa kennsluna allt frá áramótum.
„Með þessu er verið að stíga mikilvæg skref í að auka fjölbreytni og efla framþróun í hafnfirsku skólastarfi. Hraðar tæknibreytingar bjóða upp á óendanlega möguleika í kennsluháttum og námi og er spjaldtölvuvæðing liður í að nútímavæða skóla bæjarins og fjárfesta í framtíð hafnfirskra skólabarna. Við vitum að reynsla annarra skóla af því að nota spjaldtölvur er góð, ekki síst við að bjóða upp á einstaklingsmiðað nám. Stefnt er að því að spjaldtölvur verði teknar til notkunar í öðrum skólum bæjarins á komandi misserum og árum, “ segir Rósa Guðbjartsdóttir formaður fræðsluráðs í Hafnarfirði.
Á næstu vikum munu um 300 nemendur á frá 5. – 10. bekk skólans fá tæki til notkunar. Með þessu vill skólinn vera leiðandi
í að nýta nýjustu upplýsingatæknina í námi og kennslu.
Leifur S. Garðarsson skólastjóri Áslandsskóla segir kennara hafa fengið námskeið frá utanaðkomandi fagaðilum í skólann svo og hafa verið nokkur námskeið þar sem umsjónarmaður innleiðingarinnar og kennarar kenna og miðla af reynslu sinni. „ Við höfum heimsótt aðra skóla sem hafa tekið Ipad upp við kennslu, sótt fræðslu erlendis ásamt því að Áslandsskóli er í góðu samstarfi við aðra skóla og sveitarfélög sem eru í svipuðum hugleiðingum. Þetta er frumkvöðlastarf, mikill hraði og neysla okkar á upplýsingum er mikil og auðvelt að nálgast upplýsingar. Allt þetta kallar á breytta kennsluhætti, eilítið annan hugsunarhátt sem við í Áslandsskóla erum tilbúin að takast á við. Góður undirbúningur og markviss uppbygging er lykilatriði og allir hér átta sig á að þetta er ferli sem tekur tíma. Við ætlum að taka þátt í framtíðinni og víst má telja að einhver hluti grunnskólabarna í dag á eftir að vinna störf sem í dag eru kannski ekki til „ segir Leifur.
Afhending spjaldtölvanna í Áslandsskóla í morgun er fyrsta skrefið í átt að aukinni notkun spjaldtölva í grunnskólum Hafnarfjarðarbæjar og á næstu misserum munu aðrir skólar fylgja í kjölfarið.