Stóri plokkdagurinn er sunnudaginn 26. apríl

News

Stóri plokkdagurinn er sunnudaginn 26. apríl. Setið endilega ruslið í glæra poka. Hægt er að fá slíka á þjónustumiðstöðinni, Norðurhellu 2. Svo má henda þeim á næstu endurvinnslustöð.

Plokkum fjörðinn okkar hreinan

Hafnarfjarðarbær tekur þátt í Stóra plokkdeginum í ár eins og undanfarin ár. Dagurinn er haldinn sunnudaginn 26. apríl.

Stóri plokkdagurinn er árlegur viðburður sem er skipulagður af Félagsskapnum Plokk á Íslandi í samstarfi við Rótarýhreyfinguna á Íslandi. Takið með þér glæran poka. Gott er að hafa hanska. Plokkarar geta svo farið með afraksturinn í endurvinnslustöðvar.

Athugið – hægt er að nálgast glæra poka á opnunartíma í þjónustumiðstöðinni, Norðurhellu 2, fram að helgi.

  • Hafið með glæra plastpoka; tilvalið er að hafa tvo poka, annan fyrir plastið og allt annað í hinn.

Munum að klæða okkur eftir aðstæðum. Öryggisvesti eru ákjósanleg en skilda ef við erum að plokka meðfram vegum eða við götur.

  • Frekari upplýsingar um Stóra plokkdaginn er að finna á plokk.is

Suggestion portal