Awarded 12 cultural grants and 6 housing grants

News

Twelve received cultural grants at the City of Hafnarfjörður's cultural festival, which was held in the middle of last week. Six received grants from the house preservation fund.

Menningarbærinn Hafnarfjörður efldur

Tólf fengu menningarstyrk á menningarhátíð Hafnarfjarðarbæjar sem haldin var um miðja síðustu viku. Hátíðin hófst á því að gestir minntust Björgvins Halldórssonar söngvara sem lést 9. apríl. Hátíðinni, sem átti að fara fram þann dag var frestað af virðingu við minningu hans.

„Við erum óendanlega stolt af hans ævistarfi og þeim perlum sem hann skilur eftir sig í íslenskri tónlistarsögu. Skarðið sem hann skilur eftir sig í bænum okkar er risastórt og við munum ávallt minnast hans með miklu þakklæti og hlýju,“ sagði Guðbjörg Oddný Jónasdóttir, formaður menningar- og ferðamálanefndar, í ræðu sinni fyrir afhendinguna.

Í forgang að efla menningar- og listalíf

Guðbjörg Oddný sagði frá því hvernig menningar- og ferðamálanefndin hafi sett í algeran forgang að efla menningar- og listalíf í bænum. „Við erum að láta verkin tala,“ sagði hún og hvernig bæði Lúðrasveit Hafnarfjarðar og Rimmugýgi hafi nú verið tryggður styrktasamningar næstu ár. um

„Og nú á dögunum stofnuðum við nýjan og langþráðan Kórsjóð til að styðja við það magnaða kórastarf sem einkennir Hafnarfjörð.“

Úthlutun menningarstyrkja 2026

Fjármagnið í menningarstyrkjunum undanfarin ár hefur hækkað. „Enda sjáum við nákvæmlega hvað þetta skilar miklu til baka í lifandi og skemmtilegum bæjarbrag,“ sagði Guðbjörg. „Í dag höfum við þá miklu ánægju að styrkja 9 spennandi verkefni og kynna þrjá nýja samstarfssamninga til þriggja ára.

Fyrri úthlutun menningarstyrkja árið 2026 hljóta:

  • Sigtýr Ægir Kárason – Villingar farandlistasmiðja, 250.000 kr.
  • Helena Jónsdóttir – Physical Cinema myndvörpun, 300.000 kr.
  • Erlendur Sveinsson – INNBLÁSTUR: Stefnumót listar og trúar í Krýsuvík, 1.000.000 kr.
  • Logi Guðmundsson – Hamingjuhátíð í Hellisgerði á Sólstöðum, 200.000 kr.
  • Kristmundur Guðmundsson – Ægileg tónlist III, tónleikar á Ægi, 200.000 kr.
  • Brynja Björk Hinriksdóttir – Garnival, 400.000 kr.
  • Steinar Björgvinsson – Líf í lundi, 250.000 kr.
  • Sigga Eydís Gísladóttir – HFJ Tattoo Expo, 500.000 kr.
  • Sveinn Guðmundsson – Melodica Festival, 200.000 kr.

Nefndin samþykkti einnig þrjá nýja samstarfssamninga til næstu þriggja ára (2026-2028), til viðbótar við þá sterku samninga sem þegar hefur verið gert við HEIMA og Sönghátíð í Hafnarborg. Nýju samningana hljóta:

  • Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir – Fjölmenningarleg 17. júní hátíð, 350.000 kr. á ári.
  • Elvar Gunnarsson – LG // Litla Gallerý, 1.200.000 kr. á ári.
  • Andrés Þór Gunnlaugsson – Síðdegistónar í Hafnarborg, 900.000 kr. á ári.

Einnig úthlutað úr Húsverndarsjóði

Þennan dag var einnig úthlutað úr Húsverndarsjóði 2026. „Hafnarfjörður hefur einstaka sál, og stór hluti af þeirri sál liggur í gömlu húsunum okkar. Fyrir tveimur árum endurvöktum við Húsverndarsjóð Hafnarfjarðar til að styðja dygga eigendur við að varðveita þennan byggingararf. Það er okkar nefnd sem úthlutar styrkjunum að fenginni faglegri umsögn Bæjarminjavarðar,“ lýsti Guðbjörg Oddný.

Tveimur milljónum króna var úthlutað til sex húsa sem eiga það sameiginlegt að fegra bæjarmyndina okkar.

  • Dagbjört Reginsdóttir – Suðurgata 27 (400.000 kr.)
  • Sigurgrímur Skúlason – Skúlaskeið 3 (250.000 kr.)
  • Elísabet Pétursdóttir – Hellisgata 19 (350.000 kr.)
  • Anna Guðný Möller – Vesturbraut 3 (600.000 kr.)
  • Sölvi Steinn Sigurðsson – Strandgata 19A (150.000 kr.)
  • Þóra Breiðfjörð Sigurgeirsdóttir – Brekkugata 11 (250.000 kr.)

Innilega til hamingju öll sömul, og takk fyrir að gera Hafnarfjörð að betri og skemmtilegri stað!

 

Suggestion portal