Summer Walks – Ideas wanted

News

Got an idea for a summer walk? Send us your idea at menning@hafnarfjordur.is

Gengur þú með hugmynd að sumargöngu í maganum?
Alla fimmtudaga í sumar verða gengnar menningar- og heilsugöngur um Hafnarfjörð þar sem íbúar og gestir fá að heyra áhugaverðan fróðleik um bæinn og fá tækifæri til heilsubótar. Hátt í þúsund manns tóku virkan þátt í göngunum síðasta sumar.
Dagskrá sumarsins er nú í undirbúningi og við leitum til bæjarbúa eftir hugmyndum að spennandi göngum. Sendu okkur þína hugmynd á menning@hafnarfjordur.is or on Facebook síðu Hafnarfjarðarbæjar.
Menningar- og heilsugöngurnar eru samstarfsverkefni Hafnarborgar, Byggðasafns Hafnarfjarðar, Bókasafns Hafnarfjarðar og heilsubæjarins Hafnarfjarðar. Fyrsta ganga sumarsins verður farin fimmtudaginn 4. júní.

Suggestion portal