Thirteen proposals from the Hafnarfjörður Youth Council
Ungmennaráð Hafnarfjarðar lagði tólf tillögur fyrir bæjarstjórn Hafnarfjarðar á fundi bæjarstjórnar í gær sem taka til málefna sem viðkemur unga fólkinu okkar á einn eða annan hátt; skólastarfs, tómstundastarfs og skipulags á nánasta umhverfi. Bæjarstjórn tók jákvætt í allar tillögur Ungmennaráðs og samþykkti samhljóða að vísa þeim til umræða og afgreiðslu í viðeigandi ráðum.
Ungmennaráð Hafnarfjarðar lagði þrettán tillögur fyrir bæjarstjórn Hafnarfjarðar á fundi bæjarstjórnar í gær sem taka til málefna sem viðkemur unga fólkinu okkar á einn eða annan hátt; skólastarfs, tómstundastarfs og skipulags á nánasta umhverfi. Bæjarstjórn tók jákvætt í allar tillögur Ungmennaráðs og samþykkti samhljóða að vísa þeim til umræða og afgreiðslu í viðeigandi ráðum.
Tillögur Ungmennaráðs Hafnarfjarðar eru eftirfarandi:
- Frítt í strætó – lagt til að hafnfirsk börn og ungmenni fái frítt í strætó. Samþykkt samhljóða að vísa málinu til umhverfis- og framkvæmdaráðs.
- Fjölgun og endurnýjun ruslatunna – lagt er til að ráðist verði í endurnýjun á ruslatunnum bæjarins og þeim fjölgað. Samþykkt samhljóða að vísa málinu til umhverfis- og framkvæmdaráðs
- Nýtt hundasvæði – lagt til að aðstaða fyrir hundaeigendur verði bætt með nýju hundasvæði. Samþykkt samhljóða að vísa málinu til umhverfis- og framkvæmdaráðs.
- Skyndihjálp í grunnskóla – lagt til að meiri áhersla verði lögð á kennslu skyndihjálpar í grunnskólum Hafnarfjarðar. Samþykkt samhljóða að vísa málinu til fræðsluráðs.
- Kvikmyndahús til Hafnarfjarðar – lagt til að leitað verði leiða til að fá kvikmyndahús í Hafnarfjörð. Samþykkt samhljóða að vísa málinu til bæjarráðs.
- Ekkert skólasund í unglingadeild – lagt til að skólasund verði afnumið fyrir nemendur í unglingadeild grunnskóla. Samþykkt samhljóða að vísa málinu til fræðsluráðs.
- Bláfjallarúta frá Hafnarfirði – lagt til að boðið verði upp á rútuferðir frá Firði til Bláfjalla. Samþykkt samhljóða að vísa málinu til umhverfis- og framkvæmdaráðs.
- Minna heimanám í grunnskólum – lagt til dregið verði úr heimanámi í grunnskólum Hafnarfjarðar. Samþykkt samhljóða að vísa málinu til fræðsluráðs.
- Jafnréttisfræðsla – lagt til að jafnréttisfræðsla verði efld í grunnskólum Hafnarfjarðar. Samþykkt samhljóða að vísa málinu til bæjarráðs.
- „Kakóstöðin“ – félagsmiðstöð – lagt til að opnuð verði félagsmiðstöð í miðbæ Hafnarfjarðar sem opin verði unglingum úr öllum hverfum bæjarins. Samþykkt samhljóða að vísa málinu til fræðsluráðs.
- Skólinn byrji seinna – lagt til að grunnskólinn hefjist seinna á daginn. Samþykkt samhljóða að vísa málinu til fræðsluráðs.
- Hleðslustöðvar í miðbæinn – lagt til að komið verði upp fleiri hleðslustöðvum fyrir bíla og rafskútur í miðbæ Hafnarfjarðar. Samþykkt samhljóða að vísa málinu til umhverfis- og framkvæmdaráðs.
- Skólahreystivöll í Hafnarfjörð – lagt til að settur verði upp skólahreystivöllur í Hafnarfirði. Samþykkt samhljóða að vísa málinu til umhverfis- og framkvæmdaráðs.
Hægt er að skoða fundargerð bæjarstjórnar hér
Um Ungmennaráð Hafnarfjarðar
The Youth Council of Hafnarfjörður is a platform for young people aged 13-18. The emphasis is on training in democratic working methods, as well as communicating the views of young people to the relevant authorities within the system.
Flottur hópur frá Ungmennaráði Hafnarfjarðar með bæjarstjórn Hafnarfjarðar.
Í Ungmennaráði sitja tveir fulltrúar úr hverjum grunnskóla í Hafnarfirði, þrír úr hverjum framhaldsskóla í Hafnarfirði og þrír fulltrúar sem eru valdir í gegnum Hamarinn að Suðurgötu 14. Starfsmenn ráðsins eru tveir og starfa þeir fyrst og fremst sem ráðgjafar og hafa því ekki áhrif á starfsemi þess. Markmið ráðsins að skapa vettvang og leiðir fyrir þá sem eru yngri en 18 ára til að koma skoðunum sínum og tillögum á framfæri við viðeigandi aðila. Þátttaka ungs fólks er mikilvæg til þess að bæta þjónustu og aðstæður þeirra. Á það fyrst og fremst við um málefni sem viðkemur ungu fólki á einn eða annan hátt og þau þekkja af eigin raun. Þar má nefna skólastarf, tómstundastarf og skipulag nánasta umhverfis.
Nánari upplýsingar um Ungmennaráð Hafnarfjarðar er að finna hér